Þjóðverjar koma fullir sjálfstrausts til Íslands Valur Páll Eiríksson skrifar 5. september 2021 21:17 Þjóðverjar gersigruðu Armena í kvöld. Þeir koma á Laugardalsvöll á miðvikudag. Alexander Hassenstein/Getty Images Þýskaland fór á topp J-riðils í undankeppni HM karla í fótbolta með 6-0 sigri á Armeníu í kvöld. Ísland er í fimmta sæti riðilsins og fær Þjóðverja í heimsókn í næstu umferð.
Armenar voru á toppi riðilsins fyrir kvöldið með tíu stig, en Þjóðverjar voru aðeins með níu eftir óvænt tap fyrir Norður-Makedóníu í mars. Það var snemma ljóst að þeir þýsku myndu hirða toppsætið af þeim armensku. Serge Gnabry kom Þýskalandi yfir á sjöttu mínútu og tvöfaldaði forskotið með öðru marki á 15. mínútu. Marco Reus og Timo Werner skoruðu þá sitt hvort markið fyrir leikhlé og staðan því 4-0 í hálfleik. Jonas Hoffman skoraði fimmta mark Þýskalands snemma í síðari hálfleik og Karim Adeyemi innsiglaði 6-0 sigur Þýskalands í uppbótartíma. Rúmenía fylgdi þá 2-0 sigri sínum á Íslandi á fimmtudag vel eftir með öðrum 2-0 sigri á Liechtenstein í kvöld. Alin Tosca og Cristian Manea skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleik. Þýskaland er á toppi riðilsins með tólf stig eftir fimm leiki. Armenía er með tíu stig, Rúmenía níu og Norður-Makedónía er með átta. Ísland er í næst neðsta sæti með fjögur stig eftir jafnteflið við þá makedónsku fyrr í dag og Liechtenstein rekur lestina án stiga. Sjötta umferð riðilsins er leikin á miðvikudag. Þýskaland heimsækir Ísland á Laugardalsvöll klukkan 18:45. Armenía mætir Liechtenstein og Norður-Makedónía liði Rúmeníu.
HM 2022 í Katar Mest lesið Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira