Svíþjóð eina taplausa liðið í B-riðli eftir sigur gegn Spánverjum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. september 2021 20:44 Alexander Isak skoraði fyrra mark Svía. Gonzalo Arroyo - UEFA/UEFA via Getty Images Svíar og Spánverjar áttust við í uppgjöri toppliða B-riðils í undankeppni HM 2022 í kvöld. Svíar eru nú einir á toppi riðilsins eftir sterkan 2-1 sigur. Carlos Soler kom Spánverjum yfir strax á fimmtu mínútu eftir stoðsendingu frá Jordi Alba, en Alexander Isak jafnaði metin rétt um mínútu seinna eftir mistök í vörn Spánverja. Spánverjar stjórnuðu restinni af fyrri hálfleik, en náðu ekki að bæta við marki fyrir hlé. Staðan var því 1-1 þegar að flautað var til hálfleiks. Spánverjar héldu áfram að stjórna leiknum í seinni hálfleik, en það voru þó Svíarnir sem náðu að koma boltanum í netið þegar að Viktor Claesson skoraði eftir stoðsendingu frá Dejan Kulusevski. Mark Claesson reyndist seinasta mark leiksins og þar af leiðandi sigurmark Svía sem eru nú einir á toppi B-riðils með níu stig eftir þrjá leiki. Spánverjar hafa leikið einum leik meira og eru með sjö stig í öðru sæti. Fótbolti HM 2022 í Katar
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn