Makamál

Þetta eru pörin sem fara á blind stefnumót í kvöld

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Í stefnumóta- og raunveruleikaþættinum Fyrsta blikið eru fjórir einstaklingar leiddir saman á blind stefnumót.
Í stefnumóta- og raunveruleikaþættinum Fyrsta blikið eru fjórir einstaklingar leiddir saman á blind stefnumót. Skjáskot

Þeir fjórir einstaklingar sem leiddir eru saman á blind stefnumót í öðrum þætti Fyrsta bliksins á Stöð 2 eiga ýmislegt sameiginlegt. Öll eru þau utan að landi, finnst gaman að skemmta sér, skála og syngja. 

Par 1

Sandra Sif Agnarsdóttir er 23 ára gömul og nemi í líffræði við Háskóla Íslands. Skjáskot

Annar þáttur Fyrsta bliksins verður sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 18:55. Í þættinum munu áhorfendur fá að kynnast fjórum einstaklingum og fylgja þeim á blind stefnumót. 

Kjartan Már Kárason er 24 ára og starfar sem sjómaður. Skjáskot

Sjómaðurinn Kjartan Már Kárason hittir fyrir háskólanemann Söndru Sif Agnarsdóttur. Bæði eru þau alin upp úti á landi og lærðu snemma að vinna og redda sér.

 Samkvæmt aðstandendum þeirra eiga þau það einnig sameiginlegt að vera hrókar alls fagnaðar og finnast gaman að djamma. 

Par 2

Óli Jón Gunnarsson er 33 ára gamall og starfar sem umsjónarmaður tölvukerfa hjá Sýn. Skjáskot

Söngfuglarnir Óli Jón Gunnarsson og Erla Ruth Möller eru bæði að norðan og 33 ára gömul. Á stefnumótinu komast þau að því að þau eiga mun fleira sameiginlegt en aldur og æskustöðvar.

Erla Ruth Möller er 33 ára og starfar í dag hjá Íslandspósti.Skjáskot

Samkvæmt aðstandendum Óla og Erlu eru þau bæði hálfgerðir tölvunördar og með mikið keppnisskap. 


Það verður spennandi að sjá hvort að kvikni á einhverjum ástarblossum í kvöld en hægt er að sjá sýnishorn úr þættinum hér fyrir neðan. 

Klippa: Fyrsta blikið - Annar þáttur sýnishorn

Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.

Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. 

Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur. 

Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.


Tengdar fréttir

Alteregóið Baldur galdur braust út á blindu stefnumóti

Raunveruleika- og stefnumótaþátturinn Fyrsta blikið hóf göngu sína á Stöð 2 síðasta föstudagskvöld. Í hverjum þætti eru fjórir einstaklingar kynntir til leiks og paraðir saman á blind stefnumót. 

Fyrsta blikið: „Nei, ég bý ekki með pabba þínum“

Fyrsti þáttur stefnumótaþáttarins Fyrsta bliksins var sýndur síðastliðinn föstudag á Stöð 2. Í þættinum eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem eru svo paraðir saman á blind stefnumót. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×