Makamál

Alteregóið Baldur galdur braust út á blindu stefnumóti

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Það voru eflaust einhverjir áhorfendur Stöðvar 2 sem fengu gæsahúð þegar fylgst var með blindu stefnumóti Kristbjargar og Sölva í þættinum Fyrsta blikið. 
Það voru eflaust einhverjir áhorfendur Stöðvar 2 sem fengu gæsahúð þegar fylgst var með blindu stefnumóti Kristbjargar og Sölva í þættinum Fyrsta blikið.  Skjáskot

Raunveruleika- og stefnumótaþátturinn Fyrsta blikið hóf göngu sína á Stöð 2 síðasta föstudagskvöld. Í hverjum þætti eru fjórir einstaklingar kynntir til leiks og paraðir saman á blind stefnumót. 

Háskólanemarnir Kristbjörg Eva Andersen Ramos og Sölvi Smárason voru annað tveggja para í fyrsta þættinum og er óhætt að segja stefnumótið hafi verið....

Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)

Tja, ætli töfrandi sé ekki rétta orðið.

Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þáttinn en hafa enn ekki séð hann þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér. 

Þegar Sölvi spyr Kristbjörgu út í stjörnumerkin hefjast skemmtilegar umræður. 

Eins gott að Sölvi sé ekki sporðdreki...

Eða hvað?

Klippa: FYRSTA BLIKIÐ - 1. þáttur. Þess vegna náum við svona vel saman

Sölvi treystir Kristbjörgu fyrir því að þegar hann finnur aðeins of mikið á sér þá komi alteregóið hans, Baldur galdur, í heimsókn. Og þegar það gerist geti allt farið úr böndunum. 

Þegar líða tekur á stefnumótið, gerist svo þetta...  

Klippa: FYRSTA BLIKIÐ - 1. þáttur. Ég trúi á galdra

Baldur galdur leynir greinilega á sér og kann svo sannarlega meira en bara gömlu góðu spilagaldrana. 

Kristrún og Sölvi kíktu saman á lífið eftir fyrsta stefnumótið þar sem þessi mynd náðist af þeim á skemmtistaðnum Seacret Celler í miðbænum. 

Eins og sjá má á klippunni hér fyrir ofan kviknaði vissulega á einhverjum blossum þetta kvöld og svifu allskyns töfrar, já og galdrar, yfir vötnum. 

Hvort sem fólk trúir á galdra eða ekki var ekki annað hægt en að hrífast með Sölva og Kristbjörgu á þessu skemmtilega og einlæga stefnumóti. 

Þó svo að ekki séu heimildir fyrir því að þau séu orðin par þá sást til þeirra á stefnumóti á veitingastaðnum Monkeys síðasta föstudagskvöld. 

En til gamans má geta að það er sama kvöld og þátturinn var sýndur á Stöð 2.

Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.

Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. 

Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur. 

Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×