Bílar

Fimmta kynslóð Kia Sportage hönnuð fyrir Evrópumarkað

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fimmta kynslóð af Kia Sportage.
Fimmta kynslóð af Kia Sportage.

Kia frumsýndi í gær fimmtu kynslóð hins vinsæla Sportage sem verið hefur einn söluhæsti bíll bílaframleiðandans undanfarin ár. Nýr Kia Sportage er sérstaklega hannaður fyrir Evrópumarkað því í fyrsta skipti í 28 ára sögu Sportage kemur sérstök Evrópu útfærsla af bílnum.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju.

Nýr Kia Sportage verður í boði með kraftmikilli 230 hestafla Hybrid bensínvél en einnig sparneytinni Mild Hybrid díselvél. Tengiltvinnútfærslan (Plug-in Hybrid) er með 265 hestafla, 1,6 lítra bensínvél og rafmótorum með 56 km. drægi skv.WLTP staðal. Það er því af nógu að taka og væntanlegir kaupendur ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Nýr Kia Sportage breytist mjög mikið í útliti og hönnun. Stórt og kraftmikið tígrisnefs grillið að framan, sem er eins konar ættarsvipur Kia bíla, og fallega hönnuð LED ljósin gefa fögur fyrirheit um fágun og framsækni. Framendinn tengist vel við flæðandi og sportlegan hliðarsvip bílsins. Kraftalegur afturhluti og rennileg afturljós fullkomna svo fallegar formlínur og glæsileika bílsins.

Innanrýmið er nútímalegt en um leið fágað og fallegt þar sem vandað er til verka og efnisval er til fyrirmyndar. Stjórnrýmið er fullkomlega aðlagað að þörfum ökumannsins. Stjórntæki eru öll innan þægilegrar seilingar sem og skjáir og stjórnrofar. Ökumaður getur því einbeitt sér fullkomlega að akstrinum. Tveir 12,3 tommu snertiskjáir gefa upplýsingar um allt sem tengist akstrinum og tengir ökumann og farþega við umheiminn í gegnum tæknivædd forrit.

Fimmta kynslóð af Kia Sportage var forsýndur íslenskum bílablaðamönnum í Frankfurt á dögunum.Kristinn Ásgeir Gylfason

Farangursrými bílsins hefur stækkað um 80 lítra frá síðustu kynslóð og er nú 591 lítrar en með því að fella aftursætin niður stækkar það í 1.780 lítra.

Kia Sportage er afar tæknivæddur bíll og býður upp á allt það nýjasta frá Kia í akstursaðstoðarkerfum og þægindum. Má þar nefna Nýr Sportage er samstarfsverkefni hönnunardeilda Kia í Suður-Kóreu, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Kína. Hinn nýi Kia Sportage er væntanlegur til Íslands í byrjun næsta árs en Askja er þegar byrjað að skrá fólk á áhugamannalista.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×