Setja þarf skattleysismörk á lægstu tekjuhópa þjóðfélagsins Jóhann Sigmarsson skrifar 24. ágúst 2021 10:00 Þessa hópa á ekki að setja í fjárhagslegt óöryggi með skattlagningu á lágmarks lífeyri. Sömuleiðis er hægt að tala um öryrkja í samhengi. Yfirleitt eru það manneskjur sem að hafa unnið fyrir sér eða þrá að vinna fyrir sér, en geta það ekki að sökum sjúkdóma sem það hefur fengið. Það óskar sér enginn veikindum í lífinu þau bara gerast af ýmsum ástæðum og það er ekkert til að skammast sín fyrir. Við viljum að skattleysismörk fari í ISK 380.000 á lágtekjufólk, öryrkja og eldri borgara á mánuði. Skoðað verði einnig hvort beita megi skattaívilnunum fyrir fyrirtæki og einstaklinga á efnahagslega veikum svæðum á landsbyggðinni. Barnabætur verði hækkaðar, fæðingarorlof lengt og barnavörur verði án virðisaukaskatts. Hluta námslána verði breytt í styrk. Neðra skattþrep verði lækkað verulega og persónuafsláttur verði hækkaður og útgreiðanlegur. Frítekjumark vegna vinnu verði hækkað. Fjármögnun og niðurskurður ríkisútgjalda Hátekjuskattur verði hækkaður á þá tekjuhærri, fjármagnseigendur og stórfyrirtæki sem að eru fjárhagslega stöðug og standa undir sér. Binda þarf krónuna við stöðugan gjaldmiðil til að sveiflur verði ekki eins miklar og hafa verið. Skoða þarf hagstæðasta og raunhæfasta kostinn í stöðunni áður en það verður gert. Peningastefnuna skal endurskoða, raunvextir á Íslandi þurfa að endurspegla breyttan efnahagslegan veruleika. Fækka þarf ráðuneytum, ráðherrum, þingmönnum, embættismönnum og starfsfólki ráðuneyta og nefnda á vegum þess. Hagkvæmni yrði gerð á rekstri með sameiningu ráðuneyta, sveitarfélags- og ríkisstofnana. Þak verður sömuleiðis sett á bónusa, tímakaup verktaka, ívilnanir og starfslokasamninga viðkomandi aðila eða fyrirtækja. Samningar sem gerðir eru við hið opinbera eða ríkisstofnanir með útboði skulu standa. Ef að verkefni fer fram úr áætlun og kostnaði skal viðkomandi aðili, fyrirtæki eða verktaki taka ábyrgð á því en ekki hið opinbera. Að þak verði sett á hæstu laun hjá hinu opinbera s.s. hjá ráðherrum, þingmönnum, embættismönnum og forstjórum ríkisfyrirtækja. Hæstu launin verði ekki hærri en sem nemur 4 földum lægstu launum hins opinbera og að launasamræmi verði sett á fyrir jafna atvinnustöðu milli kynjanna. Lækka þarf kostnað og fríðindi ráðherra, þingmanna, embættismanna og forstjóra á vegum hins opinbera. Við munum leggja áherslu á fækkun og sameiningu sveitarfélaga, fækkun nefnda og starfsfólks á vegum þeirra. Að ríkisstyrkir til stjórnmálaflokka verði afnumdir með öllu. Standa þarf vörð um náttúruauðlindir í landinu. Hagnaður af leigu eða sölu á ríkiseignum fer í þjóðarsjóð til að styrkja atvinnusköpun og uppbyggingu innviða. Fiskveiðikvóti verður boðinn upp til hæstbjóðanda á markaðsvirði og til fleiri aðila yfir landið allt. Þingmenn og ráðherrar eru snillingar í því að teygja lopann til að koma engu í verk Fráfarandi ríkisstjórn brann inni með bunka af málum og stjórnarsáttmálinn var brotinn. Að sjá forsætisráðherra vera að réttlæta svikin og getuleysið á Alþingi og í fjölmiðlum er mjög dapurlegt. Það kaldhæðnislega við stjórnarsamstarfið er að forsætisráðherra er vinsælli hjá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, en hjá eiginn flokki. Mörg og sömu mál hafa verið lengi að velkjast um á Alþingi í vikur, mánuði, ár, áratugi og jafnvel frá stofnun lýðveldisins eða fyrr. Það tekur of mikinn tíma frá þjóðinni að láta ekkert gerast. Þingmenn og ráðherrar eru að blaðra of mikið um sama málið, láta gera skýrslur til og frá, skipa stjórnir og nefndir með eða á móti málefnum, án þess að nokkuð gerist. Það er engin framkvæmdagleði á Alþingi nema að þingmenn séu að vinna fyrir eigin hagsmuni eða þrönga viðskiptaelítu þessa lands. Það er stífla hjá flestum stofnunum þjóðfélagsins út af valdi Alþingis og að þingmenn fái að setja fólk úr flokkunum í allar stjórnir þessara stofnanna. Það er undirförult tækifærispot og setur spillingu í kerfið, en engu að síður bláköld staðreynd. Flokkarnir eru tvískinnungar og flestir þingmenn þeirra eru atvinnulygarar sem að hvort tveggja er böl fyrir almenning. Eins og einn lögfræðingur útskýrði í fjölmiðlum sem var að vinna fyrir hið opinbera, þá varð hann alltaf að bíða með erindin sem að komu inn á borð til hans í nokkra mánuði eða jafnvel ekki að svara þeim vegna tilskipan yfirmanna sinna. Það var ekki hægt að vinna þau strax er þau komu inn á borð. Allt eru þetta opinberar stofnanir og starfsfólki þess ber að svara almenningi. Ójöfnuðurinn er orðin svo mikill og ráðamönnum virðist vera alveg skítsama sama um almenning í landinu, nema að sjálfsögðu fyrir kosningar. Þá koma lygar til málamyndunnar sem verður að sjálfsögðu ekki staðið við eftir kosningar. Stjórnsýslan er orðin nánast ósnertanleg hjá opinberum stofnunum. Þetta hlýtur að vera eina lýðræðisríkið í heiminum þar sem að stjórnsýslan og stjórnvöld komast upp með að svindla á almennum þegnum sínum. Nú í vor var almenningur var að greiða prófkjör fyrir val á lista hjá flokkunum sem að sitja á þingi. Veitt var vel á kostnað almennings og veislan heldur áfram þar til að kosningar eru gengnar í garð. Almenningur ræður hvað hann kýs nú í haust. Loforð fyrir þjóðfélagið sem að svikin voru af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Ég tala lítið um svikin sem að voru framin fyrir augliti íslendinga, en forsætisráðherra ber ábyrgð á gjörðum allra sinna ráðherra. Loforðum um afnám verðtryggingar ekki framfylgt. Ríkisstjórnin stóð ekki við fyrirheit í stefnuyfirlýsingu sinni um skref til afnáms verðtryggingar á kjörtímabilinu. Vísitölu til verðtryggingar verður heldur ekki breytt, en verðbólga hefur ekki verið meiri í átta ár. Fimm kosningar frá hruni án breytinga á stjórnarskrá. Engin af þeim breytingum sem að háttvirtur sjálfdýrkandi Katrín Jakobsdóttir vildi gera á stjórnarskránni náði í gegn, en verkefnið á að halda áfram næsta kjörtímabil. Þingmenn stjórnarflokkanna og Miðflokks stöðvuðu að frumvarp hennar færi úr nefnd. Landvernd sagði að Vinstri græn hafa skort þrek og þor til að stofna Hálendisþjóðgarð. Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks beittu sér gegn Hálendisþjóðgarði, þrátt fyrir að málið væri í stjórnarsáttmála. Landvernd segir meðferð ríkisstjórnarinnar hafa skaðað stuðning við málið hjá almenningi. Endurskoða átti lög um vernd, friðun og veiðar villtra dýra. Þetta komst þó inn í stjórnarsáttmálann, en ekki lengra. Friðun hvala, þá einkum langreyðar, sem engin önnur þjóð í veröldinni leyfir veiðar á. Í stað friðunar, veitti ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur umfangmestu hvalveiðileyfi, sem sögur fara af; drepa mátti 2.130 dýr á tímabilinu 2019 til 2023. Mengun vegna raforkuframleiðslu jafnast á við 16 álver. 79% raforku á Íslandi er sögð framleidd með kjarnorku og jarðefnaeldsneyti. Sala hlut í Íslandsbanka fór fram þó að 61,2 prósent landsmanna væri neikvæðir gagnvart því. Einungis 13,5 prósent þeirra voru jákvæðir gagnvart því og 25,2 prósent höfðu ekki sérstaka skoðun á því. Átta stórar virkjanir eru í bígerð á Íslandi. Nato hefur verið með æfingar undir ríkisstjórn Vinstri grænna. Félagslegt réttlæti er í molum sem er ekkert nema óréttlæti í garð meginþorra íbúa þessa lands og gróf mannréttindabrot hafa verið framin á sjúklingum, öryrkjum og eldri borgurum. Mannréttindi hafa verið brotin á flóttamönnum. Alþingi heldur almenningi í heljargreipum vegna þess að það er að troða strengjabrúðum og flokkskúkum inn í allar stjórnir ríkisstofnanna. Stofnanirnar eru ekki sjálfstæðar, heldur er þeim stýrt í gegnum flokkspólitíkina á Alþingi. Þingmenn þessara flokka eru uppteknari að kynna sjálfa sig en að standa við gefin loforð. Reyndar eitt það óhugnanlegasta sem að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vildi gera á núverandi þingi var að ganga lengra með frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof og heimila það án tímamarka. Það þýðir hreinlega að myrða ófætt saklaust barn rétt áður en það kemur út í heiminn. Ég efast um að satan sjálfur hefði getað fundið það upp. Höfundur er listamaður, kvikmyndagerðarmaður og formaður Landsflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Sigmarsson Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun