Erlent

Gróðurinn logar og eldar ógna þúsundum heimila

Heimir Már Pétursson skrifar
Skógurinn bókstaflega logar í norður Sierra Nevada.
Skógurinn bókstaflega logar í norður Sierra Nevada. epa/John G. Mabanglo

Þúsundum heimila í norður Kaliforníu er nú ógnað af mestu skógareldum sem þar hafa geisað og óttast menn að þeir dreifist um allan vesturhluta ríkisins vegna óstöðugs veðurfars.

Þrumuveðri sem hófst á föstudag fylgdi ekki mikil rigning en öflugir vindar og eldingar náðu að kveikja elda hér og þar í Sierra Nevada, þar sem slökkiliðsmenn hafa barist við hina svo kölluðu Dixie elda í mánuð. 

Mikið hitnaði í veðri á svæðinu í gær og fór hitinn upp í 38 gráður. 

Vindur er víða mikill og eldingum slær enn niður víðs vegar um norðurhluta Californíu. 

Dixie eldarnir eru þeir stærstu af um hundrað eldum sem loga í gróðri víðs vegar í vesturhluta Bandaríkjanna, þar sem ríkt hafa miklir þurrkar og hitasvækja svo vikum og mánuðum skiptir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×