Samstarf

Heitreykti laxinn selst upp í hverri viku

Norðanfiskur
Heitreikti laxinn og bleikjan frá Norðanfiski eru frábær í útileguna og veiðiferðir.
Heitreikti laxinn og bleikjan frá Norðanfiski eru frábær í útileguna og veiðiferðir.

Íslendingar eru vitlausir í heitreyktan lax frá Norðanfiski svo tvöfalda þurfti framleiðsluna til að anna eftirspurn.

Íslendingar eru vitlausir í heitreyktan lax frá Norðanfiski svo tvöfalda þurfti framleiðsluna til að anna eftirspurn.

„Heitreykti laxinn er tiltölulega nýr af nálinni hjá okkur og fór hægt af stað til að byrja með en í sumar varð algjör sprenging,“ segir Páll Jónsson sem sér um markaðsmál hjá Norðanfiski.

Hamagangurinn hófst þegar Páll greip með sér pakka af heitreyktum laxi í gönguferð upp að eldgosinu í Geldingadölum, enda laxinn tilvalinn í nesti. Hann smellti mynd af laxinum með eldgosið og hraunið í baksýn og skellti inn á samfélagsmiðla.

Myndin sem Páll tók í gönguferð að gosinu og fór á flug á samfélagsmiðlum.

„Þar með fór hann á flug og vikuna eftir þurftum við að tvöfalda framleiðsluna,“ segir Páll. „Nú selst heitreykti laxinn upp í hverri viku í Bónus og eftir að stjörnukokkurinn Gordon Ramsey var staddur hér á landi fyrr í sumar og gerði tilraunir með að heitreykja sjálfur lax, kynti það enn frekar undir vinsældunum,“ segir Páll en Ramsey birti myndband af eldamennskunni á Tik tok.

Páll segir reyndar ekkert skrítið að heitreykti laxinn sé svona vinsæll. Hann sé dýrindis matur sem nákvæmlega ekkert þurfi að hafa fyrir. Framleiðsluaðferðin gerir það að verkum að laxinn er tilbúinn á diskinn beint úr umbúðunum og þá sé hann líka bráðhollur.

„Hann er kjörinn fyrir þá sem hugsa um heilsuna, stútfullur af Omega 3 fitusýrum og fellur undir ketó mataræði sem margir aðhyllast. Hann hentar líka frábærlega í útileguna, ferðalagið og veiðiferðina þar sem það má borða hann beint upp úr pakkanum. 

EInfalt, fljótlegt og svakalega gott.

Við mælum með piparrótarsósunni okkar með laxinum en það er glæný sósa í sósulínuna okkar sem fæst öll í Bónus. Hún var sérstaklega hönnuð með heitreykta laxinn í huga,“ segir Páll.

Heitreykti laxinn er kjörinn í útileguna þar sem hann er tilbúinn beint úr pakkanum. 

Við stóðumst ekki freistinguna og prófuðum heitreykta laxinn ofan á grillað brauð. Matreiðslan var sáraeinföld og fljótleg en útkoman var hreint frábær. Reykta bragðið af laxinum tryllti bragðlaukana og piparrótarsósan fullkomnaði réttinn.

Hér fyrir neðan má finna skotheldar útfærslur af heitreyktum laxi:



Heitreyktur lax á smjörsteiktu súrdeigsbrauði

  • Heitreyktur lax
  • Súrdeigsbrauð
  • Smjör
  • Piparrótarsósa

Pennslið Súrdeigsbrauð með smjöri og grillið eða steikið á pönnu þar til brauðið hefur fengið gullbrúna áferð. Rífið heitreyktan lax yfir brauðið og toppið síðan með sælkera piparrótarsósu Norðanfisks. Einfaldur og frábær réttur í millimál eða forrétt og mun án alls vafa slá í gegn.

Einfalt og ljúffengt laxasalat með heitreyktum laxi frá Norðanfiski

  • 150g heitreyktur lax
  • 1 egg
  • 1/2 laukur
  • 2 msk majónes
  • Salt og pipar eftir smekk

Laukurinn er saxaður smátt og eggið skorið í litla bita. Heitreykta laxinum og majónesi er síðan bætt við og allt er hrært saman. Kryddað með salt og pipar eftir smekk.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×