Golf

Deila forystunni fyrir lokahringinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Matt Fitzpatrick deilir forystunni fyrir lokahringinn á Opna skoska meistaramótinu.
Matt Fitzpatrick deilir forystunni fyrir lokahringinn á Opna skoska meistaramótinu. Mark Runnacles/Getty Images

Belginn Thomas Detry og Englendingurinn Matt Fitzpatrick leiða Opna skoska meistaramótið í golfi fyrir lokahringinn sem leikinn verður á morgun. Búast má við mikilli spennu á toppnum.

Fátt hefur skilið menn að á toppnum á mótinu til þessa en fyrir hring dagsins deildu þrír menn forystunni á ellefu höggum undir pari; Thomas Detry, Jon Rahm og Jack Senior, sem hafði verið einn í forystu eftir fyrsta hringinn. Aðeins höggi á eftir þeim voru svo George Coetzee, Lee Westwood og Matt Fitzpatrick.

Senior, sem hafði leikið fyrsta hringinn á sjö höggum undir pari, tókst ekki að viðhalda þeim þeim gæðum í dag þar sem hann lék á tveimur höggum yfir pari og hrundi niður í 17. sæti. Detry lék hins vegar jafnt og þétt golf þar sem hann fór 14 holur á pari, fékk einn skolla, tvo fugla og einn örn. Hann fór hringinn því á þremur höggum undir pari og er í forystunni á 14 undir parinu.

Matt Fitzpatrick lék höggi betur, á fjórum höggum undir pari, og deilir því toppsætinu með Detry eftir að hafa verið höggi á eftir honum fyrir daginn í dag. Spánverjinn Jon Rahm er höggi á eftir þeim þar sem hann fór hringinn á tveimur undir pari.

Næst á eftir honum kemur Ástralinn Lucas Herbert, sem var frábær í dag er hann fór hringinn á sjö höggum undir pari. Hann fékk einn skolla, einn örn og sex fugla á hringnum.

Manna best lék þó Alexander Björk sem fékk átta fugla á hringnum og fór aðrar holur á pari. Hann fór hringinn því á átta höggum undir pari og vann sig upp í 8.-16. sæti þar sem hann er á tíu höggum undir pari.

Hér má sjá stöðuna á mótinu.

Lokahringur mótsins fer fram á morgun og hefst klukkan 11:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×