Golf

Lizette Salas brosir á ný og er efst á KMPG: „Mér líkaði ekki við mig sjálfa 2020“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lizette Salas slær hér á  Johns Creek golfvellinum í  Georgíu í gær.
Lizette Salas slær hér á  Johns Creek golfvellinum í  Georgíu í gær. Getty/ Edward M. Pio Roda

Bandaríski kylfingurinn Lizette Salas er á toppnum eftir fyrsta daginn á KPMG risamóti kvenna í golfi. Hún talaði um andlega heilsu sína eftir hringinn.

Salas lék fyrstu átján holur KPMG risamótsins á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Hún á eitt högg á næstu hina ensku Charley Hull.

Salas fékk ekki einn skolla á hringum og náði tvisvar sinnum tveimur fuglum í röð á par þrjú og par fimm holu.

Lizette Salas er 31 árs gömul og af mexíkönskum ættum. Hennar besti árangur á risamóti er annað sætið á Opna breska meistaramótinu árið 2019.

Í viðtölum við blaðamenn eftir hringinn í nótt þá ræddi Salas erfiðleika sína á tímum kórónuveirunnar.

„Mér líkaði ekki við sjálfa mig 2020 og ég held að kórónuveiran og það að ég hafi ekki getið æft og spilað golf, þar sem ég fæ útrás, hafi verið mér mjög erfitt,“ sagði Lizette Salas.

Salas hafði aldrei rætt þetta opinberlega áður og ekki einu sinni við foreldra sína þjálfara eða liðið í kringum sig. Hún þrjóskaðist við í eigin heimi við að reyna að vinna sig út úr þunglyndinu.

„Það var erfitt fyrir mig að ræða um þetta því mér fannst að annað fólk hlyti að vera ganga í gegnum svipaða hluti. Af hverju ætti ég að vorkenna sjálfri mér? Þegar á leið þó varð þetta meira og meira vandamál og á endanum gat golfið ekki einu bjargað mér,“ sagði Salas sem líður betur núna og brosti sínu breiðasta í gær.

„Þetta var ekki rétta leiðin hjá mér og ég geri mér grein fyrir því,“ sagði Salas um að halda öllu leyndu. „Ég er allt önnur manneskja í dag og ég held að liðið mitt sé stolt af mér. Ég vona að ég geti haldið áfram á þessum jákvæðu nótum. Ég er ekki lengur hrædd við það að vera hérna úti,“ sagði Salas.

Sigurinn er þó langt frá því að vera í höfn hjá Lizette Salas þótt hún sé í forystu. Það er mikið golf eftir og KPMG risamótið verður í beinni á Stöð 2 Golf alla helgina. Útsendingin í kvöld hefst klukkan 15.00 í dag og svo aftur klukkan 21.00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×