Golf

Mickelson slökkti á símanum sínum og lokaði sig af í aðdraganda US Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Phil Mickelson sést hér á æfingahringnum sínum á Torrey Pines golfvellinum í San Diego.
Phil Mickelson sést hér á æfingahringnum sínum á Torrey Pines golfvellinum í San Diego. AP/Gregory Bull

Einn kylfingur er sérstaklega spenntur fyrir Opna bandaríska risamótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn kemur.

Bandaríkjamanninum Phil Mickelson dreymir um að vinna Opna bandaríska í fyrsta sinn á ferlinum í þessari viku og hann lokaði sig af í aðdraganda mótsins til að undirbúa sig sem best fyrir þetta frábæra tækifæri.

Mickelson fagnaði sigri á PGA-meistaramótinu á dögunum og er því með bullandi sjálfstraust. Það er samt annað sem gerir mótið mjög spennandi fyrir hann því það fer fram á hálfgerðum heimavelli hans.

Opna bandaríska er spilað á Torrey Pines en þetta er heimabær Phil Mickelson og golfvöllurinn sem hann ólst upp á.

„Þetta er einstakt tækifæri því ég hef aldrei unnið Opna bandaríska,“ sagði Phil Mickelson við blaðamenn eftir æfingahring sinn í gær. Phil Mickelson hefur unnið sex risamót og öll nema Opna bandaríska mótið.

„Þetta er haldið í bakgarðinum hjá mér. Ég hef líka tækifæri til að undirbúa mig almennilega og vildi nýta mér það,“ sagði Mickelson sem hefur lokað sig af í aðdraganda mótsins.

„Ég lokaði á allan hávaða. Ég slökkti á símanum mínum og slökkti líka á öllu því sem gæti truflað mig. Þetta gerði ég svo ég gæti náði einbeitingu og auka möguleika mína á að spila eins vel og ég get. Auðvitað þarf maður alltaf heppni en ég veit að ég er að spila vel og ég vildi nýta mér það og ná fram mínu besta,“ sagði Phil Mickelson.

Mickelson heldur upp á 51 árs afmælið sitt á morgun eða daginn fyrir mótið. Hann hefur unnið þrjú PGA-mót á þessum golfvelli. Það hefur hins vegar ekki gengið eins vel síðan að vellinum var breytt árið 2001.

„Ég hef spilað hér margoft síðan þeir breyttu vellinum en ég hef samt ekki eytt miklum tíma í að átta mig á litlu hlutunum við völlinn. Það gerði ég aftur á móti í síðustu viku,“ sagði Mickelson.

Mickelson hefur sex sinnum endað í öðru sæti á Opna bandaríska meistaramótinu síðast árið 2013 þegar hann endaði aðeins tveimur höggum á eftir Justin Rose. Næst komst hann því að vinna árin 1999 og 2006 þegar hann var bara einu höggi frá efsta sætinu.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×