Viðskipti erlent

Musk veltir Bitcoin aftur af stað

Snorri Másson skrifar
Elon Musk hefur verið sakaður um markaðsmisnotkun með sífelldum ummælum sínum um Bitcoin, sem hafa jafnan gríðarleg áhrif á rafmyntarmarkaði.
Elon Musk hefur verið sakaður um markaðsmisnotkun með sífelldum ummælum sínum um Bitcoin, sem hafa jafnan gríðarleg áhrif á rafmyntarmarkaði. AP/Hannibal Hanschke

Virði Bitcoin hefur hækkað um 12% eftir að Elon Musk auðkýfingur ítrekaði áform fyrirtækis síns, Tesla, um að taka við rafmyntinni þegar Bitcoin-gröftur væri kominn í umhverfisvænna horf.

Bitcoin er komið yfir 40.000 Bandaríkjadali í fyrsta skipti frá 21. maí, en um það leyti hrundi virði myntarinnar í kjölfar ummæla sama manns. Þá tilkynnti Musk um að Tesla ætlaði ekki að taka við gjaldmiðlinum á meðan rafmyntargröfturinn væri eins vistskæður.

Nú hefur Musk tekið af allan vafa um að fyrirtækið ætli sér sannarlega að stunda viðskipti með gjaldmiðlinum þegar til þess kemur. Musk brást við þegar suðurafrískur fjárfestir sakaði hann um markaðsmisnotkun með sífelldum ummælum sínum af og á um Bitcoin.

„Þegar staðfesting fæst á skynsamlegri (um 50%) hreinni orkunotkun í rafmyntargreftri með jákvæðum horfum til framtíðar, mun Tesla aftur leyfa millifærslur með Bitcoin,“ skrifaði Musk.

Eitt Bitcoin var metið á um 65.000 dali um miðjan apríl en hafði hrunið um helming niður í 32.000 dali 8. júní. Nú gæti horft til betri tíðar fyrir rafmyntina eftir hressilega dýfu.

Fjárfestirinn Paul Tudor Jones ýtti síðan enn á siglingu Bitcoin með ummælum sínum í dag um að hann leitaðist við að eiga alltaf ákveðið mikið af Bitcoin-i í sínu fjárfestingasafni.

Mikil efasemdarbylgja hefur gengið um rafmyntarheiminn undanfarinn mánuð eftir að Elon Musk hratt af stað síðustu dýfu. Þrátt fyrir að hafa hrunið í kjölfar hennar, hefur virði myntarinnar þó aukist um 30% frá upphafi ársins 2021.


Tengdar fréttir

Tesla hættir að taka við Bitcoin

Tesla mun framvegis ekki taka við rafmyntinni Bitcoin sem greiðslu vegna umhverfissjónarmiða. Elon Musk, forstjóri Tesla, segir umhverfisáhrif þess að grafa eftir rafmyntinni ekki réttlætanleg.

Bitcoin og aðrar rafmyntir í frjálsu falli

Rafmyntin Bitcoin hefur hrunið í virði í dag. Virði myntarinnar hefur lækkað stöðugt undanfarna fimm daga en botninn virðist taka úr þegar ráðmenn í Kína tilkynntu að herða ætti ólarnar á rafmyntum þar í landi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×