Innlent

Óska eftir vitnum að um­ferðar­slysi í Mos­fells­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Slysið varð síðastliðinn fimmtudag um klukkan 19.
Slysið varð síðastliðinn fimmtudag um klukkan 19. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að alvarlegu umferðarslysi sem varð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ, á móts við Leirvogstungu, fimmtudaginn 27. maí.

Tilkynning barst lögreglu um slysið klukkan 19.07, en þar rákust saman ljósgrár Suzuku Liana og ljósgrár Mitsubishi L200. Ökutækin voru að koma úr gagnstæðri átt.

Þeir sem urðu vitni að slysinu, eða kunna að geta veitt upplýsingar um það, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið birna.g@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×