Rafíþróttir

RNG í úrslit MSI eftir sigur gegn PSG Talon

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
RNg tryggði sæti sitt í úrslitum MSI í dag með 3-1 sigri gegn PSG Talon. Þeir mæta annaðhvort MAD Lions eða DWG KIA, en undanúrslitaviðureign þeirra fer fram á morgun.
RNg tryggði sæti sitt í úrslitum MSI í dag með 3-1 sigri gegn PSG Talon. Þeir mæta annaðhvort MAD Lions eða DWG KIA, en undanúrslitaviðureign þeirra fer fram á morgun. Colin Youngwolff/Riot Games/Riot Games Inc. via Getty Images

RNG tryggði sig í dag í úrslitaeinvígi MSI mótsins í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll. RNG þótti sigurstranglegra liðið í einvíginu gegn PSG Talon og niðurstaðan 3-1 sigur kínverska liðsins.

Við fengum að sjá virkilega fjörugt og spennandi einvígi milli þessara tveggja liða í dag. Fyrirfram þótti RNG mun sigurstranglegra liðið, en PSG Talon gáfu ekki tommu eftir.

Fyrsti leikur dagsins var sá lengsti á MSI 2021 hingað til. RNG hefur að meðaltali spilað stystu leiki mótsin og því var þetta óvanalegt að sjá.

Mikið jafnræði var með liðunum fyrstu 15 mínúturnar, en þá tók RNG forystuna. Þeir litu þó aldrei út fyrir að hafa algjöra stjórn á leiknum, og korteri seinna var PSG Talon búið að vinna forskotið upp. RNG er þó ekkert lamb að leika sér við. Þeir náðu forskoti sínu aftur og unnu að lokum eftir tæpar 47 mínútur af League of Legends til að komast í 1-0.

Leikur númer tvö var ekki alveg jafn spennandi og sá fyrsti. PSG Talon tók forystuna snemma og héldu henni út leikinn. Þeir unnu að lokum nokkuð öruggan sigur eftir hálftíma leik, og staðan orðin 1-1.

RNG mættu virkilega grimmir til leiks í þriðju viðureign dagsins og snéru gengi PSG Talon algjörlega á hvolf. Þeir tóku afgerandi forystu snemma leiks og gengu frá andstæðingum sínum eftir aðeins 23 mínútur.

Fjórði leikur liðanna var aftur á móti algjör spennutryllir. Leikurinn var mjög jafn framan af, en þegar um 15 mínútur voru liðnar náðu RNG yfirhöndinni.

PSG Talon var þó aldrei langt á eftir og náðu fljótlega að brúa bilið. RNG virtust þó alltaf vera skrefi á undan og virtust ætla að gera út um leikinn eftir 26 mínútna leik. Þá steig nýliðinn Doggo, sem spilar ADC fyrir PSG Talon, upp og bjargaði liði sínu úr vandræðum.

RNG héldu áfram að þjarma að PSG Talon og þegar 35 mínútur höfðu verið spilaðar tóku þeir Elder Dragon. Með honum hreinsuðu þeir meðlimi PSG Talon af borðinu og kláruðu loks leikinn, og einvígið þar með unnið.


Tengdar fréttir

Undanúrslit MSI hefjast á morgun

Undanúrslit MSI mótsins í League of Legends sem fram fer í Laugardalshöll hefjast á morgun. Liðin fjögur sem eftir eru, ásamt þjálfurum þeirra, sátu fyrir svörum blaðamanna í dag.

MAD Lions og PSG Talon tryggðu sig í undanúrslit MSI

Seinasti dagur milliriðilsins á MSI sem haldið er í Laugardalshöll fór fram í dag. Cloud9 þurfti að treysta á að hvorki MAD Lions né PSG Talon myndi vinna leik í dag til að eiga möguleika á að stela sæti í undanúrslitum. Vonir þeirra urðu þó að engu áður en þeir spiluðu fyrsta leik dagsins.

Pentanet.GG náði í sinn fyrsta sigur en er úr leik á MSI

Sex leikir fóru fram á næst seinasta degi milliriðilsins á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. DWG KIA gulltryggði sæti sitt í undanúrslitum og Pentanet.GG á ekki lengur möguleika á að komast áfram.

Fyrsta tap RNG á MSI og mikilvægur fyrsti sigur Cloud9

Cloud9 náði loksins í sinn fyrsta sigur í milliriðli MSI þegar þeir mættu Pentanet.GG í uppgjöri botnliðanna. PSG Talon tókst það sem engum öðrum hefur tekist á MSI þegar þeir unnu RNG.

Cloud9 í erfiðri stöðu eftir annan dag milliriðilsins á MSI

Cloud9 tapaði báðum leikjunum sínum á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag og eru enn án sigurs í milliriðlinum. RNG heldur sigrugöngu sinni áfram og eru ósigraðir í öllum 12 leikjum sínum.

RNG enn ósigraðir á MSI

Fyrsti dagur milliriðilsins fór fram á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. RNG sigraði báða leiki sína, og eru því ósigraðir í tíu leikjum.

RNG taplausir og í fyrsta skipti sem ástralskt lið fer upp úr riðli á alþjóðlegu móti

Það var nóg um að vera á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll um helgina. Keppni í A-riðli er lokið, en Royal Never Give Up, eða RNG, kláruðu sinn riðil með átta sigrum í jafn mörgum leikjum. Með þeim upp úr riðlinum fara Pentanet.GG, en þetta er í fyrsta sinn sem ástralskt lið kemst áfram á alþjóðlegu móti.

Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI

Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9.

Í beinni frá Laugardalshöllinni

Stöð 2 eSport mun sýna frá öllum keppnisdögum MSI mótsins sem fer fram í Laugardalshöll en þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið.

MSI hefst á morgun: Heimsmeistararnir ríða á vaðið

MSI, eða Mid Season Invitational mótið í League of Legends hefst á morgun, en mótið er haldið í Laugardalshöll hér í Reykjavík. Þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið og hingað til lands eru mætt nokkur af bestu liðum heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×