Rafíþróttir

MAD Lions og PSG Talon tryggðu sig í undanúrslit MSI

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
MAD Lions urðu í dag seinasta liðið til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum MSI þar sem þeir mæta ríkjandi heimsmeisturum í DWG KIA.
MAD Lions urðu í dag seinasta liðið til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum MSI þar sem þeir mæta ríkjandi heimsmeisturum í DWG KIA. Photo by Riot Games/Riot Games Inc. via Getty Images

Seinasti dagur milliriðilsins á MSI sem haldið er í Laugardalshöll fór fram í dag. Cloud9 þurfti að treysta á að hvorki MAD Lions né PSG Talon myndi vinna leik í dag til að eiga möguleika á að stela sæti í undanúrslitum. Vonir þeirra urðu þó að engu áður en þeir spiluðu fyrsta leik dagsins.

Opnunarleikur dagsins var af dýrari gerðinni, en þar mættust RNG og DWG KIA. Þessi tvö lið eru talin líklegust til sigurs á mótinu, og DWG KIA gat tryggt toppsæti riðilsins með sigri.

Leikurinn var jafn í upphafi, en eftir um 15 mínútur fóru RNG að síga fram úr. DWG KIA gerðu hvað þeir gátu til að brúa bilið, og á tímabili leit út fyrir að það væri að takast hjá þeim.

RNG er þó ekkert lamb að leika sér við og þeir kláruðu að lokum mikilvægan sigur eftir 34 mínútur af æsispennandi League of Legends.

Í öðrum leik dagsins mættust PSG Talon og Pentanet.GG í leik þar sem PSG Talon gat tryggt sæti sitt í undanúrslitum.

PSG Talon sýndi neðsta liðinu enga miskun og unnu virkilega öruggan sigur eftir 27 mínútna leik.

Þriðji leikur dagsins var líklega sá mikilvægasti, en þar mættust MAD Lions og RNG. MAD Lions gat tryggt sæti í undanúrslitum með sigri, en sigur fyrir RNG myndi tryggja þeim toppsæti riðilsins.

Fulltrúar LEC frá Evrópu mættu virkilega ákveðnir til leiks og náðu fljótlega góðri forystu gegn kínversku meisturunum í RNG.

RNG hafa oftar en einu sinni, og oftar en tvisvar komið til baka og snúið leikjum sér í haf, en MAD Lions gerðu engin mistök og tryggðu sér sæti í undanúrslitum með nokkuð öruggum sigri.

PSG Talon mætti Cloud9 í fjórða leik dagsins. Þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik þennan daginn voru Cloud9 nú þegar dottnir úr leik og því ekkert nema stoltið undir.

Leikurinn var jafn og skemmtilegur, en það var ekki fyrr en eftir 25 mínútna leik sem PSG Talon fór að taka forystuna. Rúmum tíu mínútum seinna var snjóboltinn orðinn of stór fyrir Cloud9, og sigur PSG Talon í höfn.

DWG KIA gátu tryggt efsta sæti riðilsins með sigri gegn botnliði Pentanet.GG. Sigur í riðlinum gefur liðinu val um mótherja í undanúrslitum og því mikið undir fyrir ríkjandi heimsmeistara.

Leikurinn var nokkuð rólegur, en heimsmeistararnir voru í bílstjórasætinu frá upphafi. Þeir kláruðu að lokum öruggann sigur og tryggðu sér efsta sæti riðilsins.

Lokaleikur dagsins var viðureign MAD Lions og Cloud9 í þýðingarlitlum leik. MAD Lions þegar komnir áfram og Cloud9 fallnir úr leik.

Leikurinn varð hin mesta skemmtun og mikið um að vera. Bæði lið að spila án nokkurrar pressu og við fengum að sjá einn blóðugasta leik mótsins. Cloud9 endaði á að taka sigurinn, og það er ágætis sárabót að vinna fulltrúa Evrópu, en mikil keppni hefur myndast á milli Bandaríkjanna og Evrópu síðustu ár.

Undanúrslitin hefjast á föstudaginn, en þá mætast PSG Talon og RNG. Á laugardaginn er svo viðureign MAD Lions og DWG KIA. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitin og hægt er að fylgjast með báðum þessum viðureignum í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport sem hefst klukkan 12:30 báða dagana.

Úrslit dagsins

RNG - DWG KIA

Pentanet.GG - PSG Talon

RNG - MAD Lions

PSG Talon - Cloud9

DWG KIA - Pentanet.GG

MAD Lions - Cloud9


Tengdar fréttir

Pentanet.GG náði í sinn fyrsta sigur en er úr leik á MSI

Sex leikir fóru fram á næst seinasta degi milliriðilsins á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. DWG KIA gulltryggði sæti sitt í undanúrslitum og Pentanet.GG á ekki lengur möguleika á að komast áfram.

Fyrsta tap RNG á MSI og mikilvægur fyrsti sigur Cloud9

Cloud9 náði loksins í sinn fyrsta sigur í milliriðli MSI þegar þeir mættu Pentanet.GG í uppgjöri botnliðanna. PSG Talon tókst það sem engum öðrum hefur tekist á MSI þegar þeir unnu RNG.

Cloud9 í erfiðri stöðu eftir annan dag milliriðilsins á MSI

Cloud9 tapaði báðum leikjunum sínum á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag og eru enn án sigurs í milliriðlinum. RNG heldur sigrugöngu sinni áfram og eru ósigraðir í öllum 12 leikjum sínum.

RNG enn ósigraðir á MSI

Fyrsti dagur milliriðilsins fór fram á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. RNG sigraði báða leiki sína, og eru því ósigraðir í tíu leikjum.

RNG taplausir og í fyrsta skipti sem ástralskt lið fer upp úr riðli á alþjóðlegu móti

Það var nóg um að vera á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll um helgina. Keppni í A-riðli er lokið, en Royal Never Give Up, eða RNG, kláruðu sinn riðil með átta sigrum í jafn mörgum leikjum. Með þeim upp úr riðlinum fara Pentanet.GG, en þetta er í fyrsta sinn sem ástralskt lið kemst áfram á alþjóðlegu móti.

Allt eftir bókinni á fyrsta degi MSI

Það urðu engin óvænt úrslit þegar Mid Season Invitational í League of Legends fór af stað í Laugardalshöllinni í dag. Ríkjandi heimsmeistarar opnuðu mótið með sannfærandi sigri gegn fulltrúum LCS, Cloud 9.

Í beinni frá Laugardalshöllinni

Stöð 2 eSport mun sýna frá öllum keppnisdögum MSI mótsins sem fer fram í Laugardalshöll en þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið.

MSI hefst á morgun: Heimsmeistararnir ríða á vaðið

MSI, eða Mid Season Invitational mótið í League of Legends hefst á morgun, en mótið er haldið í Laugardalshöll hér í Reykjavík. Þetta er í sjötta sinn sem mótið er haldið og hingað til lands eru mætt nokkur af bestu liðum heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×