Körfubolti

James meiddist en er klár í umspilið við Curry

Sindri Sverrisson skrifar
LeBron James skoraði 25 stig fyrir Lakers í nótt en liðinu gekk illa þegar hans naut ekki við vegna meiðsla í vetur.
LeBron James skoraði 25 stig fyrir Lakers í nótt en liðinu gekk illa þegar hans naut ekki við vegna meiðsla í vetur. AP/Derick Hingle

Deildarkeppninni í NBA-deildinni í körfubolta lauk í nótt og nú fer úrslitakeppnin að bresta á. Fyrst þarf þó að spila hið nýja umspil sem meistarar LA Lakers neyðast til að taka þátt í.

Sex efstu lið austurdeildar og sex efstu lið vesturdeildar eru örugg í úrslitakeppnina. Liðin sem enduðu í 7.-10. sæti fara hins vegar í umspil um síðustu lausu sætin í úrslitakeppninni.

Umspilið í austurdeild:

Þriðjudagur 18. maí:

  • Leikur 1: Charlotte - Indiana
  • Leikur 2: Washington - Boston
  • (Sigurliðið fær sæti 7 í úrslitakeppni austurdeildar)

Fimmtudagur 20. maí:

  • Sigurliðið úr leik 1 - Tapliðið úr leik 2
  • (Sigurliðið fær sæti 8 í úrslitakeppni austurdeildar)

Umspilið í vesturdeild:

Miðvikudagur 19. maí:

  • Leikur 1: San Antonio - Memphis
  • Leikur 2: Golden State - LA Lakers
  • (Sigurliðið fær sæti 7 í úrslitakeppni vesturdeildar)

Föstudagur 21. maí:

  • Sigurliðið úr leik 1 - Tapliðið úr leik 2
  • (Sigurliðið fær sæti 8 í úrslitakeppni vesturdeildar)

Meistarar Lakers neyðast til að fara í umspilið þrátt fyrir að hafa unnið New Orleans Pelicans í lokaumferðinni, 110-98. Þeir enduðu í 7. sæti, fyrir neðan Portland Trail Blazers sem unnu 132-116 sigur á Denver Nuggets.

Svona lítur úrslitakeppnin út. Eins og sjá má eru fjögur laus sæti eftir, vegna umspilsins. Sigurliðið úr leik LA Lakers og Golden State Warriors mun til að mynda mæta Phoenix Suns í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.NBA

Segir Lakers vera að ná vopnum sínum

LeBron James skoraði 25 stig fyrir Lakers en fór svo meiddur af velli í fjórða leikhluta, eftir að hafa lent með annan fótinn á fæti Nickeil Alexander-Walker. James fullyrti þó að það yrði í lagi með sig og vonandi fyrir Lakers að hann verði klár í slaginn gegn Stephen Curry og félögum í Golden State á miðvikudaginn. Hann fullyrti að svo yrði.

James viðurkenndi að Lakers hefðu viljað gera betur í vetur en meiðsli hans og Anthony Davis hafa sett stórt strik í reikninginn.

„Ég spái ekkert í því í hvaða sæti við förum inn í úrslitakeppnina. Það skiptir ekki máli. Auðvitað hefðum við viljað spila mun betur á þessari leiktíð en meiðsli gerðu liðinu afar erfitt fyrir. Við erum loksins að ná okkur og orðnir aðeins ánægðari með ástandið hjá okkur,“ sagði James.

Úrslitin í gær:

  • New York 96-92 Boston
  • Toronto 113-125 Indiana
  • Washington 115-110 Charlotte
  • San Antonio 121-123 Phoenix
  • Golden State 113-101 Memphis
  • Atlanta 124-95 Houston
  • Brooklyn 123-109 Cleveland
  • Philadelphia 128-117 Orlando
  • Detroit 107-120 Miami
  • Chicago 118-112 Milwaukee
  • Minnesota 136-121 Dallas
  • New Orleans 98-110 LA Lakers
  • Oklahoma 117-112 LA Clippers
  • Portland 132-116 Denver
  • Sacramento 99-121 Utah
NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×