Samstarf

Jökullinn skartar sínu fegursta

Mountaineers of Iceland
Mountaineers of Iceland bjóða spennandi ferðir um Langjökul.
Mountaineers of Iceland bjóða spennandi ferðir um Langjökul. Mountaineers of Iceland

Spennandi ferðir um Langjökul eru í boði hjá Mountaineers of Iceland.

„Núna er besti tíminn til þess að fara upp á jökul. Ennþá nægur snjór, sólin komin hátt á loft og veðrið er milt og gott. Það er frábært að skoða þetta svæði á vélsleða núna,“ segir Haukur Herbertsson, framkvæmdastjóri útvistarfyrirtækisins Mountaineers of Iceland en fyrirtækið býður hópferðir á vélsleða upp á Langjökul.

„Við bjóðum upp á tvennar vélsleðaferðir, annarsvegar ferð þar sem keyrt er á sleðum um snjóbreiðuna á jöklinum og hinsvegar ferð þar sem stoppað er í íshellinum á austanverðum Langjökli,“ útskýrir Haukur.

Stoppið í íshellinum er sérstaklega vinsælt og þar getur fólk tekið myndir og skoðað sig um. Útsýnið er einstakt yfir Hvítárvatn en sjálfur hellirinn nær 70 metra inn í jökulinn. Í ísveggjunum má lesa sögu Íslands allt að 400 ár aftur í tímann gegnum öskulög.

„Ísinn er kristalstær og þéttur og til dæmis mjög skemmtilegt að lýsa með vasaljósi inn í ísvegginn því geislinn nær svo langt inn í ísinn,“ segir Haukur. „Við sækjum hópana við Gullfoss og skutlum fólki upp í skála í Geldingafelli við Bláfellsháls þar sem allir fá búnað sem þarf fyrir ferðina, heilgalla, yfirskó, hanska og hjálm. Svo keyrir hópurinn af stað inn á jökulinn. 

Allar ferðir eru farnar með fararstjórum frá okkur. Miðað er við tvo á hvern sleða en þeir sem vilja fá að keyra einir geta gert það gegn aukagjaldi en bílpróf þarf til þess að fá að keyra sleða. Þetta er frábær ferð fyrir vinahópa og fjölskyldur en sex ára aldurstakmark er í ferðirnar. Ferðin um jökulinn tekur um klukkustund og svo skutlum við hópnum aftur á Gullfoss. Í heildina eru þetta um þrír og hálfur til fjórir tímar,“ segir Haukur.

Panta verður með fyrirvara og í síðasta lagi deginum áður.

„Svona ferðir eru auðvitað alltaf háðar veðrinu og ef spáin er slæm bjóðum við fólki að færa sig um dagsetningar, eða fá ferðina endurgreidda,“ segir Haukur.

Nánar má kynna sér ferðirnar hér.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×