Gríðar­leg dramatík er Juventus hélt Meistara­deildar­vonum sínum á lífi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Markið sem hélt vonum Juventus um Meistaradeildarsæti á lífi.
Markið sem hélt vonum Juventus um Meistaradeildarsæti á lífi. Valerio Pennicino/Getty Images

Juventus vann hádramatískan 3-2 sigur á Ítalíumeisturum Inter Milan í dag og hélt þar með vonum sínum um Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð á lífi.

Cristiano Ronaldo kom Juventus yfir á 24. mínútu er hann fylgdi eftir eigin vítaspyrnuklúðri. Aðeins tíu mínútum síðar fengu gestirnir vítaspyrnu. Romelu Lukaku fór á vítapunktinn og jafnaði metin.

Það stefndi allt í að staðan yrði jöfn er liðin færu til búningsherbergja í hálfleik en á þriðju mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks kom Juan Cuadrado heimamönnum yfir á nýjan leik og staðan orðin 2-1.

Þegar aðeins tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik fékk Rodrigo Bentancur sitt annað gula spjald og Juventus því manni færri næstu 35 mínútur leiksins. Það tókst meisturum Inter á endanum að nýta sér en Giorgio Chiellini varð þá fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Markið var dæmt af en stóð á endanum. Chiellini var alls ekki sáttur við dómara leiksins og fékk gult spjald fyrir kjaftbrúk í kjölfarið.

Hann gat hins vegar lítið kvartað þegar dómari leiksins gaf þeim einfaldlega vítaspyrnu á 88. mínútu er Cuadrado fór niður innan vítateigs. Hann fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi. Staðan orðin 3-2 og Juventus við það að vinna mikilvægan sigur.

Marcelo Brozovic hjálpaði þeim við það en hann nældi sér í tvö gul spjöld á fjögurra mínútna kafla og lét reka sig útaf. Bæði lið því með 10 leikmenn inn á þegar loksins var flautað til leiksloka.

Juventus vann 3-2 sigur sem þýðir að liðið á enn möguleika á að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Lærisveinar Andrea Pirlo eru sem stendur í 4. sæti með 75 stig að loknum 37 leikjum. 

AC Milan er með jafn mörg stig í 3. sæti en hafa leikið leik minna, sömu sögu er að segja af Napoli sem er með 73 stig í 5. sæti. Napoli mætir Fiorentina á morgun og Verona í lokaumferð deildarinnar. Ljóst er að liðið þarf að tapa öðrum af þessum leikjum svo Juventus geti endað í Meistaradeildarsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira