Jói Berg og félagar steinlágu fyrir Leeds

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rodrigo skorar annað mark sitt og fjórða mark Leeds.
Rodrigo skorar annað mark sitt og fjórða mark Leeds. Martin Rickett - Pool/Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley fengu Leeds í heimsókn á Turf Moor í næstsíðasta heimaleik tímabilsins. Leeds fór með eins marks forskot inn í hálfleikinn, en þrjú mörk í seinni hálfleik tryggðu öruggan 4-0 sigur gestanna.

Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi leiks, en gestirnir voru þó ögn líklegri. Það stefndi allt í að markalaust yrði í hálfleik, en á 44. mínútu brutu gestirnir ísinn.

Það var á ferðinni Mateusz Klich með góðu skoti eftir stoðsendingu frá Raphinha.

Á 60. mínútu viru gestirnir svo búnir að tvöfalda forystuna. Jack Harrisson fylgdi þá eftir skoti Ezgjan Alioski, og brekkan orðin brött fyrir Burnley.

Rodrigo, sem kom inn á sem varamaður fyrir Leeds á 58. mínútu, innsyglaði svo siurinn með tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla. Það fyrra á 77. mínútu, og það seinna á 79. mínútu.

Jóhann Berg spilaði seinustu 20 mínútur leiksins og var nálægt því að leggja upp mark undir lok leiksins, en sending hans aðeins of föst fyrir Ashley Westwood.

Leeds er enn í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og fer upp í 53 stig. Burnley situr 15. sæti með 39 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira