Gylfi og fé­lagar gerðu marka­laust jafn­tefli við Aston Villa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gylfi Þór tekur aukaspyrnu í leik dagsins.
Gylfi Þór tekur aukaspyrnu í leik dagsins. Lindsey Parnaby/Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson lék 67 mínútur í markalausu jafntefli Everton og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Gylfi Þór var á sínum stað í byrjunarliði Everton og var svona hvað líklegastur til að finna glufur á sterkri vörn heimamanna. Hann nældi sér í gult spjald þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og var á endanum tekinn af velli á 67. mínútu leiksins.

Gylfa tókst líkt og öðrum leikmönnum liðanna ekki að finna netmöskvana og lokatölur því 0-0 eins og áður hefur komið fram.

Everton er sem stendur í 8. sæti deildarinnar með 56 stig að loknum 35 leikjum á meðan Aston Villa er í 11. sæti með 49 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira