Viðskipti erlent

Voru með 44 milljarða evra í tekjur en greiddu ekki skatt

Snorri Másson skrifar
Amazon greiddi engan skatt í Lúxemborg þrátt fyrir metár í tekjum þar í landi árið 2020.
Amazon greiddi engan skatt í Lúxemborg þrátt fyrir metár í tekjum þar í landi árið 2020. Getty/Rolf Vennenbernd

Amazon átti metár í Evrópu árið 2020, þegar stórfyrirtækið tók inn 44 milljarða evra í tekjur, enda margir að versla heima í faraldrinum.

Guardian greinir hins vegar frá því að stórfyrirtækið greiddi enga skatta í Lúxemborg, í höfuðstöðvum sínum í Evrópu.

Söludeild fyrirtækisins í Evrópu tilkynnti um tap upp á rúman milljarð evra til lúxemborgskra yfirvalda, sem gerði það að verkum að það sleppti við að þurfa að borga skatt.

Tapið, sem á að hafa orsakast af afsláttum og starfsmannakostnaði meðal annars, aflaði fyrirtækinu skattaafsláttar í landinu upp á 56 milljónir Bandaríkjadali.

Amazon fylgdi lúxemborgskum reglum að sögn New York Times og hefur greitt skatta sína í takt við tekjur í öðrum Evrópulöndum.

Skattfrelsi þeirra í Lúxemborg er þó líklegt til að verða vopn í höndum evrópskra stjórnmálamanna sem löngum hafa leitað leiða til að fá tæknirisann til að borga meiri skatta, segir í frétt NYT.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×