West Ham þremur stigum frá Meistara­deildar­sæti

Anton Ingi Leifsson skrifar
Antonio afgreiddi Burnley í kvöld.
Antonio afgreiddi Burnley í kvöld. Jon Super/Getty Images

West Ham vann góðan 2-1 útisigur á Burnley er liðin mættust í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Það voru heimamenn í Burnley sem komust yfir er Chris Wood skoraði úr vítaspyrnu á nítjándu mínútu.

Tveimur mínútum síðar hafði Michail Antonio jafnað metin og á 29. mínútu var Antonio búinn að koma þeim í 2-1.

Antonio hefur verið heitur á tímabilinu en hann reyndist hetjan í leiknum því fleiri uru mörkin ekki.

West Ham er í fimmta sætinu með 58 stig, þremur stigum frá Chelsea í fjórða sætinu, en Burnley er í 16. sætinu.

Jóhann Berg Guðmundsson spilaði síðasta stundarfjórðunginn fyrir Burnley eftir að hafa byrjað á bekknum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira