Viðskipti innlent

Síminn hagnaðist um 2,8 milljarða króna

Eiður Þór Árnason skrifar
Orri Hauksson, forstjóri Símans. 
Orri Hauksson, forstjóri Símans.  Aðsend

Hagnaður Símans nam 2,8 milljörðum króna á fyrsta árs­fjórðungi saman­borið við 762 milljónir króna á sama tíma­bili í fyrra. Hagnaður Símans af sölu upp­lýsinga­tækni­fyrir­tækisins Sensa til hins norska Cra­yon Group AS nam 2,1 milljarði króna á árs­fjórðungnum og skýrir því stærstan hluta hagnaðarins.

Tekjur Símans á fyrsta ársfjórðungi hækkuðu um 1,6% og námu 6,4 milljörðum króna samanborið við 6,3 milljarða á sama tímabili í fyrra. Eigið fé Símans var 39,4 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 59,8% í lok fyrsta ársfjórðungs.

Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Símans. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) lækkaði milli ára og nam 2,5 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Hann nam 2,6 milljörðum á sama tímabili árið 2020 og lækkar 3,7%.

Lægri reikitekjur og aukinn erlendur kostnaður

Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir í tilkynningu að umtalsverð lækkun reikitekna vegna erlendra ferðamanna milli ára og aukning í erlendum kostnaði valdi lækkun EBITDA. Þá hafi fyrsti ársfjórðungur 2020 verið einn sá besti í sögu félagsins.

Hann segir að heildartekjur hafi aukist meðal annars vegna aukinnar búnaðarsölu, sem beri þó lága framlegð. Einnig tiltekur hann að tekjur af auglýsingasölu hafi aukist vegna breyttrar og sérsniðinnar þjónustu Símans við auglýsendur sem auðveldi þeim nú að ná til vel skilgreindra markhópa.

Skoða framtíð Mílu

Í tilkynningu frá félaginu er greint frá því að það hafi nú ráðið fjárfestingabankann Lazard og Íslandsbanka til að ráðleggja um stefnumarkmið og framtíðarmöguleika Mílu.

„Mikil og ör þróun hefur átt sér stað síðustu misserin á samsetningu fjarskiptafélaga á alþjóðamörkuðum. Innlendir og erlendir fjárfestar sýna þannig aukinn áhuga á sérhæfingu í fjárfestingum, meðal annars með því að innviðaeignir séu aðskildar frá þjónustufélögum í smásölu,“ er haft eftir Orra sem segir að undanfarin misseri hafi verið unnið markvisst að því að auka sjálfstæði Mílu innan samstæðu Símans.


Tengdar fréttir

Net­á­rás olli truflunum á þjónustu Símans

Netárás var gerð á Símann laugardagskvöldið 30. janúar og varð til þess að truflanir urðu á sjónvarpsþjónustu þess í rúma eina og hálfa klukkustund. Að sögn Símans var um að ræða svokallaða dreifða álagsárás eða DDoS-árás sem var gerð fyrirvaralaust á netkerfi fyrirtækisins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×