Handbolti

Mæta með óbragð í munni í Garðabæinn í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
KA/Þór er í harðri baráttu við Fram um deildarmeistaratitilinn en liðin eiga eftir að mætast í Safamýri í lokaumferðinni.
KA/Þór er í harðri baráttu við Fram um deildarmeistaratitilinn en liðin eiga eftir að mætast í Safamýri í lokaumferðinni. vísir/hulda

Stjarnan og KA/Þór mætast í Garðabæ í kvöld, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, í leik sem þegar er hægt að kalla umtalaðasta handboltaleik keppnistímabilsins.

KA/Þór var á toppi Olís-deildar kvenna þar til að áfrýjunardómstóll HSÍ komst að þeirri niðurstöðu í þarsíðustu viku að leikur liðsins við Stjörnuna skyldi leikinn upp á nýtt.

Akureyringar töldu sig hafa unnið leikinn, 27-26, rétt eins og dómarar leiksins og allir aðrir þátttakendur hans. Hins vegar reyndust mistök hafa verið gerð á ritaraborði, hjá sjálfboðaliðum Stjörnunnar, og eitt marka KA/Þórs oftalið í fyrri hálfleik.

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, sagði við Vísi eftir að niðurstaða dómstólsins lá fyrir að Akureyringar íhuguðu að fara með málið lengra, jafnvel fyrir almenna dómstóla. Með því hefði KA/Þór hins vegar sett keppni í Olís-deildinni í „gíslingu“ en þar á að spila næstsíðustu umferð á laugardag, og lokaumferðina 8. maí.

KA/Þór getur með sigri í kvöld komist einu stigi upp fyrir Fram á toppnum og berst fyrir sínum fyrsta deildarmeistaratitli í sögunni.

Töldu ótækt að tefja mótið

„Eftir að hafa ráðfært okkur við HSÍ þá varð niðurstaða okkar sú að hætta þessu máli og taka þessari niðurstöðu, þó að við séum ekki sammála henni, og reyna að klára þetta mót svo að hægt sé að fara í úrslitakeppni,“ sagði Sævar við Vísi í dag.

„Þetta mál er búið að fara fram og til baka í okkar huga. Við veltum því mikið fyrir okkur að fara með málið til ÍSÍ og jafnvel lengra. En ef við hefðum farið með málið til ÍSÍ voru meiri líkur en minni á að það myndi tefjast eitthvað áfram og að þar með yrði erfitt að ná að spila þessar tvær umferðir sem eftir eru fram að úrslitakeppni. Okkur fannst það ekki hægt, miðað við hvað það hefur verið mikið um stopp og vesen í vetur. Því var ekki annað í stöðunni en að játa okkur sigruð þó að því fylgi óbragð,“ sagði Sævar.

Vongóður um að HSÍ greiði ferðakostnað

Kostnaður KA/Þórs vegna málsins nemur hundruðum þúsunda, bæði vegna lögfræðikostnaðar og ferðakostnaðar, að ótöldu vinnutapi leikmanna sem þurfa að gera sér aðra ferð suður yfir heiðar.

Sævar kveðst gera sér vonir um að HSÍ komi til móts við KA/Þór varðandi ferðakostnaðinn en félagið hafi gert sér grein fyrir því að lögfræðikostnaðinn þyrfti það sjálft að borga.

Aðspurður hvernig hljóðið væri í leikmönnum og þjálfara, eftir allt sem á undan er gengið, svaraði Sævar:

„Auðvitað voru menn sárir og svekktir að þurfa að fara aftur af stað í dag til að spila leikinn. En svona er niðurstaða dómstóls HSÍ, þó að við séum ekki sammála henni. Ég vona bara að menn mæti til leiks til þess að vinna leikinn aftur.“

Leikur Stjörnunnar og KA/Þórs hefst kl. 19 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

Stjarnan svarar fyrir sig: Sigur fyrir handboltann

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu og segir dóm áfrýjunardómstóls HSÍ, um að leikur liðsins við KA/Þór skuli endurtekinn, vera sigur fyrir handboltaíþróttina.

Íþróttinni ekki til heilla og aðför að landsbyggðinni

„Takk fyrir þetta Stjarnan og HSÍ. Þetta er og verður handboltaíþróttinni ekki til heilla,“ segir í yfirlýsingu frá KA/Þór eftir að áfrýjunardómstóll HSÍ komst að þeirri niðurstöðu að endurtaka ætti leik liðsins við Stjörnuna.

Drauga­marks­leikurinn verður endur­tekinn

Leikur Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta verður endurtekinn. Endurskipaður áfrýjunardómstóll staðfesti fyrri dóm dómstólsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×