Innlent

Sex greindust innan­­lands og allir utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Um 6.400 manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Um 6.400 manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Sex greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Allir þeir sem greindust voru utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

169 eru nú í einangrun, en voru 134 á föstudag. 351 er nú í sóttkví, en voru 812 á föstudag. 1.100 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fimm nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en þeir voru fjórir á föstudag.

Ekkert smit greindist á landamærum í gær.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 39,8, en var 31,1 á föstudag. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 4,9, en var 5,5 á föstudag.

32.609 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 48.112 til viðbótar.

Alls hafa 6.429 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 644 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 610 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 104 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×