Innlent

Kvörtunum Sam­herja vegna sak­sóknara og dómara vísað frá

Eiður Þór Árnason skrifar
Samherji mótmælti niðurstöðunni. 
Samherji mótmælti niðurstöðunni.  Vísir/Sigurjón

Nefnd um dómarastörf og eftirlitsnefnd með störfum lögreglu hafa vísað frá tveimur kvörtunum Samherja vegna annars vegar dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og hins vegar saksóknara hjá embætti héraðssaksóknara.

RÚV greinir frá þessu. Kvartanirnar snerust um úrskurð héraðsdóms í desember þar sem fallist var á kröfu héraðssaksóknara um að endurskoðunarfyrirtækinu KPMG yrði gert að afhenda gögn um bókhald og reikningsskil félaga innan Samherjasamstæðunnar undanfarinn áratug. Farið var fram á afhendingu gagnanna í tengslum við rannsókn embættis héraðssaksóknara á starfsemi Samherja í Namibíu.

Í febrúar felldi Landsréttur úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur eftir að KPMG áfrýjaði úrskurðinum og var málið sent aftur í hérað. Í úrskurði Landsréttar kom fram að fyrir héraðsdómi hafi ekki legið fyrir nauðsynleg gögn til að tekin yrði afstaða til kröfu héraðssaksóknara um að KPMG afhenti umrædd gögn.

Telur kvörtunina ekki heyra undir valdsvið nefndarinnar

RÚV hefur fengið þær upplýsingar frá nefnd um eftirlit með lögreglu að hún hafi ekki talið tilefni til frekari meðferðar en að athygli héraðssaksóknara hefði verið vakin á málinu. Þá kom fram í svarinu að nefndin hafi ekki eftirlit með störfum ákæruvalds nema það varði störf lögreglu.

Nefnd um dómarastörf afgreiddi kvörtun Samherja á fundi sínum í gær. Í niðurstöðu hennar kemur fram að nefndin telji að kvörtunin heyri ekki undir valdsvið nefndarinnar og henni því vísað frá.

Lögmaður Samherja mótmælti því að kvörtuninni hafi verið vísað frá á grundvelli þess að ekki væri um dómsúrlausn að ræða heldur háttsemi og vanrækslu dómara.

Dómarinn sem um ræðir er Ingibjörg Þorsteinsdóttir en í athugasemdum hennar til nefndarinnar sagði hún að misritun í þingbók hafi átt sér stað. 

Mistökin væru á hennar ábyrgð þar sem hún hafi ekki gætt þess að lesa nægilega vandlega yfir forskráð atriði í þingbókinni. Það var þó mat hennar að lagaskilyrðum hafi verið fullnægt þar sem kröfugerð héraðssaksóknara hafi verið ítarleg og vitnað orðrétt til ýmissa gagna. Landsréttur hafi þó því verið ósammála.

Vildu upplýsa um hvernig ákvarðanir voru teknar

Embætti héraðssaksóknara hefur til rannsóknar Samherja og starfsmenn félagsins. Sex fyrrverandi og núverandi starfsmenn fyrirtækisins hafa réttarstöðu sakbornings. Í greinargerð héraðssaksóknara, sem vísað var til í úrskurði héraðsdóms í desember, kemur fram að til skoðunar sé tímabilið 2011 til 2019 eða lengur og að meint brot starfsmanna eða fyrirsvarsmanna Samherja og tengdra félaga varði mútur, peningaþvætti og eftir atvikum auðgunarbrot. 

Taldi Finnur Þór Vilhjámsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, nauðsynlegt að fá gögnin frá KPMG til að upplýsa um hvernig ákvarðanir voru teknar hjá Samherja varðandi starfsemi samstæðunnar í Namibíu. Sömuleiðis fjárhag- og rekstrarafkomu viðkomandi félaga. Rannsóknin beinist meðal annars að því að upplýsa hvaða starfsmenn eða stjórnendur hafi tekið ákvarðanir eða haft vitneskju um þær.

„Í þeim þætti rannsóknarinnar telji embættið að þýðingu geti haft meðal annars að upplýst verði eins og unnt sé hvernig stjórnskipulagi, ákvarðanatöku og boðleiðum eða boðvaldi innan samstæðunnar hafi almennt verið háttað á hverjum tíma,“ sagði í greinargerð saksóknara.


Tengdar fréttir

Þrír Íslendingar ákærðir í Namibíu

Þrír Íslendingar eru á meðal 26 sem hafa verið ákærðir í Samherjamálinu svokallaða sem er til meðferðar hjá yfirvöldum í Namibíu. Um er að ræða þá Ingvar Júlíusson, fjármálstjóra Samherja á Kýpur og í Afríku, Egil Helga Árnason, framkvæmdastjóra Mermaria Seafood Namibia, og Aðalstein Helgason fyrrverandi starfsmann Samherja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×