Matur

Páskaterta Alberts og Bergþórs

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bergþór og Albert gera páskatertu á hverju ári, helst aldrei þá sömu.
Bergþór og Albert gera páskatertu á hverju ári, helst aldrei þá sömu.

Þeir Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson töfra fram nýja páskatertu á hverju ári. Í þættinum Ísland í dag sýndu þeir páskatertu ársins sem er fullkomin fyrir baksturinn um helgina.

„Hefðin er eiginlega orðin sú að Bergþór minn bakar tertuna og svo birti ég á blogginu uppskriftina,“ segir Albert.  Tertan þeirra í ár er Dísudraumur sem gengur líka sums staðar á landinu undir nöfnunum Bessastaðaterta, Slumma og Slummuterta. 

Innslagið má sjá í spilaranum en uppskrift þáttarins má svo finna hér neðar í fréttinni. 

Dísudraumur með ferskum berjum

Svamptertubotn 

  • 2 egg
  • 70 g sykur
  •  30 g hveiti
  • 35 g kartöflumjöl

Aðferð:

Þeytið egg og sykur þar til blandan er hvít. Sigtið hveiti og kartöflumjöl út í og þeytið vel saman. Setjið í tertuform og bakið við 200°C í 5 mínútur, lækkið síðan hitann í 180°C og bakið áfram í 7 mínútur. Hvolfið á tertudisk.

Marengsbotn 

  • 3 eggjahvítur
  • 150 g flórsykur

Aðferð:

Þeytið saman á fullum styrk í a.m.k. 10 mínútur, svo að hægt sé að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar hreyfist. Bakið við 100°C í 2 klst., opnið ofninn ekki, látið kólna í ofninum.

Albert í eldhúsinu

Krem 

  • 3 eggjarauður
  • 4 msk flórsykur
  •  50 g brætt suðusúkkulaði

Aðferð:

Þeytið rauður og flórsykur vel saman. Bræðið súkkulaðið, hellið út í og þeytið áfram á meðan.

Rjómi 

  • 1/2 lítri rjómi
  • Ber af ýmsu tagi, brómber, hindber, vínber o.s.frv.

Aðferð:

Þeytið nú 1/2 lítra af rjóma, blandið nokkrum matskeiðum af honum út í kremið áður en ber eru sett út í rjómann. Smyrjið helmingnum af honum á svampbotninn. Hellið helmingnum af kreminu yfir rjómann og jafnið út með spaða. Setjið marengsbotninn þar ofan á, afganginn af rjómanum yfir hann og síðast afganginn af kreminu.

Skreytið að vild, með berjum og e.t.v. bráðnu súkkulaði, áður en tertan er borin fram. Oftast er rjóma sprautað á hliðarnar á Dísudraumi, en það er líka girnilegt að sjá lögin í tertunni.

Albert í eldhúsinu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×