Viðskipti innlent

Þórarinn er nýr for­maður Sam­eykis

Atli Ísleifsson skrifar
Þórarinn Eyfjörð.
Þórarinn Eyfjörð. Sameyki

Þórarinn Eyfjörð er nýr formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. Hann tekur við stöðunni af Árna Stefáni Jónssyni.

Í tilkynningu frá Sameyki kemur fram að Þórarinn hafi starfað með beinum hætti að verkalýðsmálum í fimmtán ár, fyrst sem framkvæmdastjóri hjá SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu, síðar sem framkvæmdastjóri kjara- og reksturs hjá Sameyki.

„Árið 2001 til 2006 var hann framkvæmdastjóri hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Þar stóð hann að uppbyggingu einu sterkasta sí- og endurmenntunarsetri landsins þar sem þúsundir launafólks sem starfar í opinbera geiranum sækir sér menntun og þekkingu á ári hverju. Frá árinu 2006 starfaði Þórarinn hjá SFR stéttarfélag og síðan hjá sameinuðu félagi Sameyki frá 2019.

Þórarinn Eyfjörð hefur mikla reynslu í félagsmálastörfum, allt frá meðferð ungmenna til útivistar og náttúruverndar. Hann hefur setið í ráðum og nefndum hjá menntamálaráðuneytinu og Leiklistasambandi Íslands. Hans helstu áhugamál eru félagsstörf og það sem viðkemur þeim mannlega þætti og er umhugað um velferð annarra eins og fram hefur komið í pistlum og viðtölum við hann í fjölmiðlum.

Hann lauk meistaranámi við Háskóla Íslands í opinberri stjórnsýslu í janúar sl. og ber ritgerð hans yfirskriftina: Af hverju gengur svo hægt að uppræta kynbundinn launamun? Um stefnumótun og innleiðingu stjórnvalda í sex áratugi,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að Garðar Hilmarsson hafi látið af embætti starfandi varaformanns Sameykis.

Stjórn Sameykis skipa:

  • Berglind Margrét Njálsdóttir, Tollstjóraembættið
  • Bryngeir A. Bryngeirsson, Gufunesbær frístundamiðstöð
  • Egill Kristján Björnsson, Fangelsið Hólmsheiði
  • Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko, Landspítali háskólasjúkrahús
  • Gunnar Rúnar Matthíasson, Landspítali háskólasjúkrahús
  • Herdís Jóhannsdóttir, Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar
  • Hörður J. Oddfríðarson, SÁÁ
  • Ingibjörg Sif Fjeldsted, Orkuveita Reykjavíkur
  • Ingunn Hafdís Þorláksdóttir, Grunnskóli Seltjarnarnesbæjar
  • Jóhanna Lára Óttarsdóttir, Sýslumaður höfuðborgarsvæðisins
  • Kári Sigurðsson, Frístundamiðstöðin Miðberg
  • Ólafía L. Sævarsdóttir, Tryggingastofnun ríkisins
  • Rut Ragnarsdóttir, Borgarbókasafn
  • Svanhildur Steinarsdóttir, MenntamálastofnunKári Sigurðsson, Frístundamiðstöð Miðberg
  • Ólafía L. Sævarsdóttir, Tryggingastofnun ríkisins
  • Rut Ragnarsdóttir, Borgarbókasafn
  • Svanhildur Steinarsdóttir, Menntamálastofnun




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×