Alætu-Júmbó hafði betur gegn fulltrúum grænkera Eiður Þór Árnason skrifar 22. mars 2021 12:26 Á þessari samsettu mynd má sjá merkin þrjú, Jömm, Oatly og Júmbó. Vísir/Samsett Neytendastofa telur að ekki séu nógu mikil líkindi með merkjum Júmbó og Jömm annars vegar eða Júmbó og Oatly hins vegar til að skapa hættu á því að neytendur ruglist á þeim. Nokkur umræða skapaðist um málið í október 2019 þegar sumir höfðu orð á því að ný umbúðahönnun Júmbó líktist hönnun áðurnefndra vörumerkja.
Sænski haframjólkurframleiðandinn Oatly AB og Veganmatur ehf. sem framleiðir matvörur og rekur veitingastað undir merkjum Jömm kvörtuðu í kjölfarið sameiginlega til Neytendastofu sem hefur nú birt niðurstöðu sína í málinu. Gæti haft áhrif á ákvörðun neytenda Fram kemur á vef Neytendastofu að fyrirtækin hafi gert athugasemd við notkun Sóma ehf. á auðkenninu Júmbó í nýlega breyttri mynd. Báðir aðilar sérhæfa sig í framleiðslu á matvörum sem innhalda engar dýraafurðir. „Í kvörtuninni er rakið að Veganmatur og Oatly telji JÚMBÓ svo líkt auðkennunum JÖMM og OATLY sameiginlega að neytendur gætu ruglast á þeim. Töldu Veganmatur og Oatly jafnframt að viðskiptahættir Sóma væru til þess fallnir að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um viðskipti og raska verulega fjárahagslegri hegðun þeirra.“ Í ákvörðun Neytendastofu segir að Sómi hafi hafnað þessum athugasemdum og meðal annars vísað til þess að takmörkuð samkeppni væri milli fyrirtækjanna. Þar að auki nytu Veganmatur og Oatly ekki sameiginlegra hagsmuna og því væri ekki hægt að fjalla um líkindi Júmbó við Jömm og Oatly í sameiningu. „Þegar JÚMBÓ væri borið saman við JÖMM og OATLY í sitthvoru lagi væru líkindin ekki til þess fallin að neytendur ruglist á þeim.“ Fannst hönnunin kunnugleg Þegar umræða um meint líkindi umbúðanna stóð sem hæst í október höfnuðu forsvarsmenn Sóma því í samtali við Vísi að horft hefði verið til Jömm og Oatly við hönnun á nýjum umbúðum undir merkjum Júmbó. Sæunn Ingibjörg Marínósdóttir, framkvæmdastjóri Veganmatar og eigandi Jömm, sagði þá við Vísi að viðskiptavinir hafi sett sig í samband við fyrirtækið til að furða sig á nýjum umbúðum Júmbó. „Fyrst fengum við ábendingu frá konu sem sendi okkur mynd af þessu og ætlaði að grípa sér nýja Jömm-grautinn sem hún taldi sig hafa séð. Þegar hún kom langleiðina á kassann fattaði hún svo að þetta var ekki Jömm heldur Júmbó,“ sagði Sæunn í október. „Okkur brá pínulítið að sjá þetta, okkur fannst þetta svona svolítið kunnuglegt.“ Sómi og Oatly ekki í beinni samkeppni Neytendastofa fellst í megindráttum á rök Sóma. Í fyrsta lagi bæri að meta líkindi auðkennisins Júmbó og auðkennanna Jömm og Oatly í sitthvoru lagi, þar sem ekki væri lagagrundvöllur fyrir því að meta líkindi auðkennis við tvö auðkenni sameiginlega sem séu í eigu tveggja fyrirtækja. Þá taldi stofnunin að Oatly og Sómi væru ekki keppinautar á markaði þar sem fyrirtækin væru ekki að framleiða samskonar vörur. Þó væri ákveðin skörun á starfsemi Veganmatar og Sóma en báðir aðilar selja samlokur og aðra tilbúna rétti í matvöruverslunum. Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu eftir að hafa framkvæmt heildarmat á útliti allra vörumerkjanna að ekki væri tilefni til aðgerða af hálfu hennar í málinu. Þannig féllst Neytendastofa ekki á að notkun Sóma á auðkenninu Júmbó fæli í sér óréttmæta viðskiptahætti gagnvart Vegnmat og Oatly eða að notkunin væri villandi gagnvart neytendum.
Matvælaframleiðsla Auglýsinga- og markaðsmál Tíska og hönnun Höfundaréttur Tengdar fréttir „Maður eiginlega móðgast þetta er svo léleg útskýring“ Innanhúshönnuðurinn Rut Káradóttir sakar hönnuð Slippfélagsins um að hafa tekið litakort sitt ófrjálsri hendi og gert að sínu eigin. Hún segir málið vonbrigði og greinilegt að höfundaverk séu ekki metin að verðleikum á Íslandi. Forsvarsmaður Slippfélagsins og hönnuður kortsins hafna ásökununum og vísa til eldri litakorta. 6. mars 2021 08:00 Allt í hnút hjá Svarta sauðnum og Yarmi Erfiðar deilur tveggja íslenskra handverksfyrirtækja hafa vakið upp spurningar um hugverkaumgjörð og hönnunarvernd hér á landi. Fyrirtækið Yarm er sakað um að hafa lengi reynt að koma í veg fyrir prjónavörusölu samkeppnisaðila án árangurs. Í framhaldinu hafa deilurnar farið stigvaxandi. 22. nóvember 2019 09:30 Afsakar að eyðileggja partýið og birtir sönnun þess að Enginn eins og þú sé ekki stolið Arnar Ingi Ingason, pródúsent sem samdi lagið Enginn eins og þú með tónlistarmanninum Auðunni Lútherssyni, segir ekkert til í því að lagið sé undir áhrifum eða stolið af hljómsveit frá Nýja-Sjálandi. 13. janúar 2020 16:51 Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira
„Maður eiginlega móðgast þetta er svo léleg útskýring“ Innanhúshönnuðurinn Rut Káradóttir sakar hönnuð Slippfélagsins um að hafa tekið litakort sitt ófrjálsri hendi og gert að sínu eigin. Hún segir málið vonbrigði og greinilegt að höfundaverk séu ekki metin að verðleikum á Íslandi. Forsvarsmaður Slippfélagsins og hönnuður kortsins hafna ásökununum og vísa til eldri litakorta. 6. mars 2021 08:00
Allt í hnút hjá Svarta sauðnum og Yarmi Erfiðar deilur tveggja íslenskra handverksfyrirtækja hafa vakið upp spurningar um hugverkaumgjörð og hönnunarvernd hér á landi. Fyrirtækið Yarm er sakað um að hafa lengi reynt að koma í veg fyrir prjónavörusölu samkeppnisaðila án árangurs. Í framhaldinu hafa deilurnar farið stigvaxandi. 22. nóvember 2019 09:30
Afsakar að eyðileggja partýið og birtir sönnun þess að Enginn eins og þú sé ekki stolið Arnar Ingi Ingason, pródúsent sem samdi lagið Enginn eins og þú með tónlistarmanninum Auðunni Lútherssyni, segir ekkert til í því að lagið sé undir áhrifum eða stolið af hljómsveit frá Nýja-Sjálandi. 13. janúar 2020 16:51