Innlent

Enn mikil aðsókn að svæðinu en hætturnar margar í myrkrinu

Hólmfríður Gísladóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa
Ragnar Axelsson náði þessari stórkostlegu mynd af hrauninu flæða fram.
Ragnar Axelsson náði þessari stórkostlegu mynd af hrauninu flæða fram. Vísir/RAX

Enn er mikil aðsókn að gosstöðvunum í Geldingadal, þrátt fyrir myrkur og erfiðar aðstæður. Björgunarsveitarmenn og lögregla verður á staðnum í nótt en vara enn og aftur við því að fólk freisti þess að fara of nálægt.

„Þetta er búið að vera mjög mikið í dag og bætti frekar í þegar leið á daginn,“ segir Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, sem var á svæðinu seinni part dags og aftur um kvöldmatarleytið.

Gunnar segir að það hafi komið sér á óvart hversu mikil umferð var að svæðinu við lokun Grindavíkurvegs. Hann segist hins vegar telja að margir sem leggja af stað fótgangandi snúi á endanum við, enda langt að fara og erfitt yfirferðar.

„Það hafa verið þarna björgunarsveitarmenn í allan dag, einn til tveir bílar, og talað við alla sem fara þarna um,“ segir Gunnar. „Fólk er tekið tali og þulið yfir það sem er búið að segja í fjölmiðlum aftur og aftur,“ bætir hann við en það virðist ekki alltaf skila sér.

Varðandi skilaboðin í fjölmiðlum vísar hann meðal annars til tilmæla Vísindaráðs, sem bað fólk um að fara ekki nálgæt gosinu og halda sig frekar á hæðum umhverfis dalinn. Mikil hætta getur skapast ef hraunið hleypur skyndilega fram, ef gos kemur upp í nágrenninu og þegar gas safnast fyrir í dældum, svo dæmi séu nefnd.

Þessi hætta eykst að sjálfsögðu í niðamyrkri.

Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks að sýna almenna skynsemi og fara ekki í námunda við gíginn sem gýs úr og halda...

Posted by Lögreglan á Suðurnesjum on Saturday, March 20, 2021

Fólk streymir að úr öllum áttum

Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík, segir að björgunarsveitir muni standa vaktina á svæðinu til klukkan átta í fyrramálið. Aðspurður segir hann að vissulega sé komin nokkur þreyta í mannskapinn en Þorbjörn nýtur aðstoðar björgunarsveita frá höfuðborgarsvæðinu og af Suðurlandi einnig sem munu standa vaktina á svæðinu í nótt.

„Við erum með nokkra hópa, þeir verða til átta í fyrramálið og svo hættum við störfum,“ segir Bogi í samtali við Vísi. Hann segir erfitt að segja til um það hversu margt fólk hafi farið um svæðið í dag og í kvöld enda streymi fólk að „úr öllum áttum,“ eins og Bogi orðar það. „Það er búið að opna þetta alveg fyrir göngum.“

Um tíu til tuttugu björgunarsveitarmenn í senn hafa staðið vaktina á svæðinu í dag og munu gera áfram í nótt. „En klukkan átta í fyrramálið þá drögum við alveg úr viðbragði,“ segir Bogi. „Lögreglan ákvað að loka vettvangsstjórn í fyrramálið, ekki vera með hann opinn, við erum ekki að gera þetta að okkar eigin frumkvæði,“ segir Bogi. Liðsmenn björgunarsveitarinnar hafi verið allir að vilja gerðir og reiðubúnir að standa vaktina á meðan á þurftir að halda.

„Við verðum kannski eitthvað á ferðinni á morgun en það verður ekkert fast viðbragð,“ segir Bogi, en þeir sem hyggjast halda inn á svæðið geri það á eigin ábyrgð. Hann brýnir fyrir öllum sem hyggjast berja gosið augum að fara varlega, vera vel búnir og kynna sér vel þær hættur sem blasa við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×