Hörmu­legt gengi E­ver­ton á heima­velli heldur á­fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jóhann Berg í leik dagsins.
Jóhann Berg í leik dagsins. Gareth Copley/Getty Images

Gylfi Þór æfði lítið í vikunni vegna meiðsla og var því eflaust ekki leikfær í dag.

Fyrri hálfleikur á Goodison Park var hin besta skemmtun í dag. Chris Wood kom gestunum yfir eftir fínan undirbúning Josh Brownhill. Á 24. mínútu skoraði Dwight McNeil eitt af mörkum ársins er hann fór illa með brasilíska miðjumanninn Alan og smurði knöttinn upp í samskeytin. Magnað mark í alla staði.

Skömmu síðar átti Jóhann Berg þrumuskot í stöngina sem hefði gert endanlega út um leikinn. Dominic Calver-Lewin kom Everton inn í leikinn eftir fyrirgjöf Tom Davis og staðan 2-1 Burnley í vil er flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Everton varð reyndar fyrir áfalli skömmu eftir að Calver-Lewin minnkaði muninn en Jordan Pickford þurfti þá að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Robin Olsen hefur verið varamarkvörður Everton á leiktíðinni en hann var ekki með í dag og því var það hinn 21 árs gamli João Virgínia sem kom inn af bekknum.

Fátt markvert gerðist í síðari hálfleik og fór það svo að Burnley vann leikinn 2-1. Jóhann Berg var tekinn af velli á 67. mínútu.

Everton hefur nú aðeins unnið einn af síðustu sjö leikjum sínum á Goodison Park. Liðið hefur gert eitt jafntefli og tapað fimm. Burnley er nú með 33 stig í 15. sæti deildarinnar en Everton er sem fyrr í 6. sæti með 46 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira