Flick nú með fleiri titla en töp og kom Bayern í hóp með 2009 liði Barca Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2021 10:00 Hans-Dieter Flick lyftir hér Meistaradeildarbikarnum. Getty/Michael Regan Hansi Flick gerði Bayern München að heimsmeisturum félagsliða í Katar í gær en liðið vann þá Tigres frá Mexíkó í úrslitaleiknum.
Frakkinn Benjamin Pavard skoraði eina mark leiksins en þessi titill þýðir að Bayern er nú handhafi sex titla. Liðið vann þrennuna á síðasta tímabili, varð þýskur meistari, þýskur bikarmeistari og vann Meistaradeildina. Liðið vann síðan bæði meistarakeppni UEFA og meistarakeppnina í Þýskalandi í haust. Hansi Flick has now won more major trophies as Bayern manager (6) than he has lost games (5). pic.twitter.com/Wt3KbmNzAO— Squawka Football (@Squawka) February 11, 2021 Hansi Flick var ráðinn aðstoðarmaður Niko Kovac þegar Króatinn tók við í júlí 2019 en tók tímabundið við þegar Kovac hætti að þjálfa liðið 3. nóvember sama ár. Flick vann 2-0 sigur á Olympiacos í Meistaradeildinni í fyrsta leik og eftir frábæra byrjun fékk hann fastráðningu út tímabilið rétt fyrir jól. Bayern hélt áfram að gera frábæra hluti undir stjórn Flick og í apríl gaf Bayern München honum síðan nýjan samning til ársins 2023. Bæjarar héldu upp á það með því að byrja að raða inn titlum. El legendario Barça 09 de Pep ya no está solo. Hay nuevo miembro en el CLUB DEL SEXTUPLETE: LA MÁQUINA PERFECTA DE FLICK.Bundesliga (16-jun)DFB Pokal (4-jul)UEFA Champions League (23-ago)UEFA Supercup (24-sep)DFL Supercup (30-sep)FIFA Club World Cup (11-feb) pic.twitter.com/MibgW1VWid— MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) February 11, 2021 Titlarnir eru núna orðið sex talsins frá því að sá fyrsti komi í hús 16. júní síðastliðinn. Aðeins eitt annað lið hefur náð því að verða sexfaldur meistari en Barcelona náði því undir stjórn Pep Guardiola árið 2009. Það er líka magnað að skoða árangur Bayern liðsins undir stjórn Hansi Flick sem tók við liðinu í nóvember 2019. Síðan þá hefur liðið unnið 58 af 68 leikjum undir hans stjórn og lyft bikar á 11,3 leikja fresti. Hansi Flick since taking over as Bayern manager: Won six trophies including the treble in his first season 85% win record Averaging a title every 11 games UEFA Men's Coach of the Year More trophies (6) than defeats (5) pic.twitter.com/oSCqsHTq86— B/R Football (@brfootball) February 11, 2021 Eftir sigurinn í gær en Bayern með fleiri titla (6) en tapleiki (5) undir stjórn Hansi Flick. Robert Lewandowski náði í raun tvöfaldri sexu þegar hann var kosinn besti leikmaður heimsmeistarakeppni félagsliða. Hann hefur nefnilega náð í sex einstaklingsverðlaun á sama tíma og liðið hans hefur unnið þessa sex titla. Lewandowski varð markakóngur í þýsku deildinni, í þýska bikarnum og í Meistaradeildinni. Hann var kosinn leikmaður ársins hjá bæði UEFA og FIFA og í gær svo bestur í HM félagsliða. Máximo goleador de BundesligaMáximo goleador de DFB PokalMáximo goleador de UEFA Champions LeagueMejor jugador del Mundial de ClubesUEFA Player of the yearFIFA World PlayerEL SEXTUPLETEEL AÑO PERFECTO (E IRREPETIBLE) de @lewy_official. pic.twitter.com/IdXsqxEw5F— MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) February 11, 2021
Þýski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira