Handbolti

Ekki sammála góðum vini sínum en skilur af hverju hann var svona grautfúll

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn Björgúlfsson og Bjarni Fritzson eru núverandi og fyrrverandi þjálfari ÍR-liðsins.
Kristinn Björgúlfsson og Bjarni Fritzson eru núverandi og fyrrverandi þjálfari ÍR-liðsins. S2 Sport

Seinni bylgjan fór yfir dómana tvo sem þjálfari ÍR-inga var svo ofboðslega ósáttur með.

Það sauð á Kristni Björgúlfssyni, þjálfara ÍR, eftir naumt tap á móti Stjörnunni í síðustu umferð Olís deildar karla í handbolta.

Það var ekkert nýtt að sjá tapsáran þjálfara kvarta yfir dómgæslu í slíku viðtali sem er tekið rétt eftir leikinn en það voru orð Kristins um mótherjanna sem vöktu meiri athygli.

„Við erum ekkert verri en Stjarnan. Það er bara langt í frá. ‚Good on paper, shit on grass' sagði einhver um daginn. Við erum ekkert lélegri pappír en þeir en við þurfum að skila inn á vellinum. Við þurfum að vera yfir þegar 60 mínútur eru búnar,“ sagði Kristinn Björgúlfsson.

„Mér finnst þeir ekkert vera betri en við. Það er fullt af gaurum þarna sem eru runnir út á dagsetningu,“ bætti síðan Kristinn. Seinni bylgjan fór yfir þessi ummæli ÍR-þjálfarans í þætti sínum í gær.

Klippa: Seinni bylgjan: Kiddi Björgúlfs og dómarnir sem gerðu hann svo reiðan

„Kiddi með sleggjuna á lofti í Austurberginu,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson og svo var farið yfir umdeildu dómana sem Kristinn var ósáttur við. Þar fá ÍR-ingar tvær brottvísanir á stuttum tíma í stöðunni 23-23.

„Ég skil fullkomlega gremju Kidda því þetta eru bara stór atriði. Þú ert með jafnan leik og svo missir þú tvo leikmenn af velli á þrjátíu sekúndum. Auðvitað skilur maður að það geti verið erfitt að taka því,“ sagði Einar Andri Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar.

„Þú ert í leik þar sem þú ert að leita að fyrstu stigunum,“ sagði Einar Andri.

„Ég er ekki sammála honum um að Stjarnan og ÍR séu með alveg eins lið á sama pappír. Fyrirgefðu. Kiddi er mjög góður vinur minn en ég er ekki sammála því. Fyrir ÍR-inga, sérstaklega þessi byrjun, það var frábært hjá þeim. Ég skil að hann sé svona grautfúll að hafa ekki náð þessu fyrsta sigri því hann er svo mikilvægur, sagði Bjarni Fritzson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar.

Það má sjá alla umfjöllunina hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×