Viðskipti erlent

Spotify hækkar verð um allt að 27 prósent

Eiður Þór Árnason skrifar
Spotify hefur sótt í sig veðrið á Íslandi og um heim allan á síðustu árum og farið langleiðina með að ganga af geisladisknum dauðum. 
Spotify hefur sótt í sig veðrið á Íslandi og um heim allan á síðustu árum og farið langleiðina með að ganga af geisladisknum dauðum.  Getty/Mateusz Slodkowsk

Tónlistarveitan Spotify hefur tilkynnt um verðhækkanir á öllum áskriftarleiðum sínum. Með breytingunum fer venjuleg Premium áskrift úr 9,99 í 10,99 evrur á mánuði, Premium Duo úr 12,99 í 14,99 evrur og Family áskrift sem nýtist allt að sex einstaklingum úr 14,99 í 18,99 evrur á mánuði.

Eftir breytinguna kostar hefðbundin Premium áskrift um 1.721 krónur og nemur verðhækkunin um það bil 157 til 626 krónum á mánuði eftir því hvaða þjónustuleið fólk er með hjá Spotify. Breytingin tekur gildi í mars hjá núverandi viðskiptavinum en nýjir greiða strax hærra verð.

Verðhækkanir hafa verið í farvatninu í nokkurn tíma hjá Spotify en verð á hefðbundinni Premium áskrift var áður það sama og árið 2013 þegar tónlistarveitan varð fyrst aðgengileg á Íslandi. Þá bauðst notendum þó einnig að kaupa takmarkaðri Unlimited áskrift fyrir 4,99 evrur á mánuði en sú þjónustuleið stendur ekki lengur til boða.

Langvinsælasta tónlistarveita landsins

Samkvæmt nýlegri neyslukönnun Gallup nota um 28% Íslendinga Spotify daglega og um helmingur notar tónlistarveituna minnst einu sinni í viku. Að sögn Félags hljómplötuframleiðenda, samtaka tónlistarútgefenda á Íslandi, er Spotify langvinsælasta tónlistarveitan á Íslandi en í kjölfar verðhækkananna er hún nú orðin dýrari en helsti keppinauturinn Apple Music.

Daniel Ek, forstjóri Spotify, greindi frá því við ársuppgjör fyrirtækisins í október á síðasta ári að verðhækkanir væru í kortunum en þrátt fyrir að geta státað sig af því að vera stærsta tónlistarveita í heimi með yfir 144 milljónir greiðandi viðskiptavini hefur fyrirtækið átt í mestu vandræðum með að skila hagnaði.

Frá því að Spotify var stofnað fyrir tólf árum hefur fyrirtækið aldrei skilað nettó hagnaði á ársgrundvelli. Stjórnendur tónlistarveitunnar hafa gefið út að á næstu árum muni þeir halda áfram að leggja áherslu á hraðan vöxt fram yfir hagnað.

RÚV greindi frá því í upphafi árs að samkvæmt tölum frá Félagi hljómplötuframleiðenda skili hvert streymi á Spotify um það bil einni krónu í vasa útgefanda, flytjanda og höfundar viðkomandi lags.


Tengdar fréttir

Mest spiluðu lögin á Spotify 2020

Drake, Bad Bunny, Dua Lipa og The Weeknd eru vinsælustu tónlistarmennirnir á Spotify ef marka má streymisumferðina þar á árinu 2020.

Spotify tók skarpa dýfu

Virði hlutabréfa í sænsku tónlistarveitunni Spotify minnkaði í gær um tíu prósent eftir að fyrirtækið greindi frá því að það myndi halda áfram að einbeita sér að því að stækka notendahópinn á kostnað hagnaðar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×