Spennandi námskeið í veiðileiðsögn Karl Lúðvíksson skrifar 29. janúar 2021 13:22 Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 2 ár boðið upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn bæði innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins.
Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 2 ár boðið upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn bæði innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins. Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra. • Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu. • Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum. • Farið verður í tveggja daga ferð í Ytri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum. • Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn.. • Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum. • Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði. • Námið er alls 95 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Ytri Rangár. Leiðbeinendur eru: Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir Elli Steinar, fiskeldisfræðingur Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur - veiðileiðsögumaður Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá. Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður Kristinn Helgason, Landsbjörg Sindri Hlíðar, Fish Partner Sigurður Héðinn, Siggi Haugur Sigurkarl Stefánsson, fuglafræðingur Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn
Stangveiði Mest lesið Þegar bleikjan gefur sig ekki er flundra í matinn Veiði Veiðin - Þriðji þáttur með Ásgeiri Heiðar Veiði Spjalla og skemmta sér fram á vor Veiði Flott veiði í Hólsá og Ármóti Veiði "Tók 50 mínútur að ná þessum risafisk inn" Veiði Plankað við bakkann Veiði Risaurriðagangan frábæra á Þingvöllum á morgun Veiði Ennþá verið að skjóta gæs Veiði Lausir dagar í veiðiánum fljótir að seljast í dag Veiði 100 laxa holl í Norðurá Veiði