Körfubolti

Harden leikmannaskiptin björguðu mögulega lífi NBA leikmanns

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Caris LeVert í leik með sínu gamla liði Brooklyn Nets.
Caris LeVert í leik með sínu gamla liði Brooklyn Nets. AP/Brandon Dill

Caris LeVert var einn af leikmönnunum sem fór í nýtt NBA-lið þegar Brooklyn Nets fékk til sín James Harden á dögunum. Við nákvæma læknisskoðun vegna skiptanna uppgötvaðist hins vegar blettur á nýranu hans.

Caris LeVert hefur verið leikmaður Indiana Pacers í nokkra daga en hann er þó ekki að fara að spila fyrir Pacers liðið á næstunni. Ástæðan tengist þó ekkert körfubolta.

Caris LeVert var einn af þeim sem fóru á milli fjögurra félaga í risaleikmannaskiptunum sem gáfu liði Brooklyn Nets tækifæri til að fá stigahæsta leikmann deildarinnar undanfarin ár í James Harden.

James Harden er farin að spila með Brooklyn Nets og sömu sögu er að segja af hinum leikmönnum sem fóru á milli liða í skiptunum. LeVert er þakklátur fyrir skiptin en ekki beint körfuboltans vegna. Hann þurfti að gangast undir nákvæma læknisskoðun og þar kom falið mein í ljós.

Það sást nefnilega blettur á nýran hans og LeVert hefur síðan verið í meðferð. Indiana Pacers segir að það sé ekki ljóst hvenær Caris LeVert spilar sinn fyrsta leik með liðinu.

„Ég sýndi engin einkenni. Ég var að spila leiki og hafði ekki misst af einum leik á þessu tímabili. Mér leið eins og ég væri hundrað prósent heilbrigður,“ sagði Caris LeVert.

„Það má því segja að þessi skipti sýndu mér hvað var í gangi í líkamanum mínum. Ég ætla að horfa á þetta þannig og ég er auðmjúkur af því að þessi skipti hafa mögulega bjargað lífi mínu,“ sagði LeVert.

„Fyrir mig er það mikilvægasta er að ná fullri heilsu á ný og passa upp á það að ég eigi langt líf. Fyrir utan körfuboltann þá er það mikilvægasta. Ég er ekki mikið að horfa á körfuboltann núna,“ sagði LeVert.

„Auðvitað vil ég spila aftur eins fljótt og hægt er. Ég er keppnismaður og ég elska að spila körfubolta. Það mikilvægasta er samt að ná heilsu á ný. Við munum finna út úr þessu öllu í framtíðinni en akkúrat núna hef ég engin svör,“ sagði Caris LeVert um hvenær hann kemur aftur inn á körfuboltavöllinn.

Caris LeVert hafði spilað vel með Brooklyn Nets á tímabilinu og var með 18,5 stig og 6,0 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu tólf leikjum liðsins.

Þetta er ekki fyrsta áfallið í fjölskyldunni. Faðir hans dó úr hjartaáfalli þegar hann var fimmtán ára en LeVert og yngri bróður hans komu að pabba sínum. Móðir hans Kim er síðan með MS-sjúkdóminn.

„Ég reyni að sjá það jákvæða í öllu. Ef þið sæjuð mömmu mína þá myndu þið aldrei giska á það að hún væri með MS sjúkdóminn eða að það væri eitthvað að henni. Ég hef trú á guð. Ég veit að allt getur ekki verið fullkomið en mínum huga er lífið hvernig þú bregst við hlutum miklu frekar en í hverju þú lendir,“ sagði Caris LeVert.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×