Handbolti

Breyttir æfingatímar um miðja nótt og finna ekki réttu rúmin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Danir halda áfram að kvarta undan aðstæðunum í Egyptalandi. Þeir eru allt annað en sáttir.
Danir halda áfram að kvarta undan aðstæðunum í Egyptalandi. Þeir eru allt annað en sáttir. EPA-EFE/Mohamed Abd El Ghany

Það hefur mikið mætt á liðunum á HM í Egyptalandi og fáir hafa kvartað meira en Danir. Morten Henriksen, framkvæmdastjóri danska sambandsins, segir að það sé eitt og annað sem betur hafi mátt fara.

Emil Jakobsen greindist með kórónuveiruna í Egyptalandi og hefur verið í einangrun. Nú ku hann hins vegar aftur vera á leið á hótel þeirra Dana eftir að hafa verið á einangrunarhótelinu en allir eru ekki sammála um hver séu næstu skref.

Í viðtali í gær bað Nikolaj Jacobsen, þjálfari danska landsliðsins, blaðamenn ekki að spyrja framkvæmdastjórann út í stöðuna á Emil því hann myndi springa í loft upp.

„Núna erum við að bíða eftir svörum úr prófinu frá því í gær. Við vonum og gerum ráð fyrir því að það sé neikvætt. Ef það er þannig þá kemur hann aftur á hótelið. Svo erum við í vandræðum með hvort að hann eigi þá að fara aftur í einangrun og þurfi tvö neikvæð próf á 48 tímum eða hvort því sé lokið því hann var á einangrunarhótelinu,“ sagði Morten í samtali við BT.

Aðspurður hvernig það gæti verið vafi á því svaraði Morten: „Við og IHF túlkum það þannig að hann er búinn að ljúka sinni einangrun en það er samtal í gangi við egypsk heilbrigðisyfirvöld og það er ekki svo einfalt. En það er verið að ræða þetta og við setjumst niður þegar Emil kemur til baka á hótelið og kíkjum á þetta.“

„Ég er eiginlega hættur að vera pirraður og nálgast það að gefast upp. Það jákvæða er þó að IHF er að berjast fyrir þessu en það eru nokkrir Egyptar sem eru ekki vanir að standa fyrir einhverju svona stóru eins og þessu. Þetta er byggt öðruvísi upp hér og núna skilur maður af hverju okkur er hrósað svona fyrir mótið í Danmörku.“

Hann nefnir nokkur dæmi sem hafa gert hann pirraðan síðustu daga.

„Æfingatíma okkar var breytt um miðja nótt. Ég fékk skilaboð í nótt klukkan tvö að búið væri að færa æfinguna okkar í dag. Þetta getur hljómað einfalt en það er lögreglufylgd hérna þegar við ferðumst svo það er ekki svo einfalt. Og klárlega ekki klukkan tvö um nóttina.“

„Magnus Bramming býr á sjöundu hæðinni og ekki hjá okkur hinum á fimmtu hæð. Það er út af því þeir finna ekki rúm fyrir hann. Þetta er hótel með 1100 herbergi og það eru um 2200 rúm. En að finna eitt tvöfalt rúm geta þeir ekki,“ en Bramming var kallaður inn í hóp danska liðsins um helgina.

„Ég væri frekar til í að starfið mitt sem framkvæmdastjóri myndi vera meira tengt handbolta en við höldum höfðinu uppi og berjumst áfram. Ég held að IHF sé komið til einhvers sem þeir bjuggust ekki við. En þú getur rætt það við þá,“ bætti Morten við.

Danirnir eru í milliriðli tvö. Þeir fara með fjögur stig í milliriðilinn þar sem þeir mæta Katar, Japan og Króatíu. Þeir eiga titil að verja.


Tengdar fréttir

Danir segja lof­orð svikin á HM í Egypta­landi

Danska handboltasambandið ásamt því þýska, norska, sænska og austurríska hefur sent kvörtun inn til IHF, Alþjóða handknattleikssambandsins, um aðstæðurnar í Egyptalandi og sóttvarnir gagnvart kórónuveirunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×