„Þetta verður persónulegra“ Sindri Sverrisson skrifar 13. janúar 2021 13:01 Ólafur Guðmundsson býst við hörkuleik á morgun gegn Portúgal þegar Ísland byrjar HM. Foto: Hulda Margrét/Hulda Margrét „Þessi stemning sem að hefur oft verið í liðinu kemur bara frá hjartanu okkar. Þetta kemur innan frá – að berjast fyrir land og þjóð, og ég hef engar áhyggjur af því. Við erum alltaf tilbúnir þegar við förum í landsliðstreyjuna. Við verðum stemmdir, það vantar ekki.“
Þetta segir Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður í handbolta, í viðtali við Vísi frá Egyptalandi nú þegar rúmur sólarhringur er í að Ísland hefji keppni á HM. Hann segir að áhorfendaleysi á mótinu komi ekki niður á baráttuandanum þó að vissulega sé það synd að hallirnar glæsilegu verði ekki fullar. Íslenska liðið fundar nú í hádeginu og skerpir enn á áherslum sínum fyrir þriðja leikinn á níu dögum við Portúgal, eftir tvo leiki liðanna í undankeppni EM. Strákarnir okkar halda svo á æfingu í glæsilegri keppnishöll F-riðils, New Capital Sports Hall, þar sem þeir æfðu einnig í gær. Höllin tekur 7.500 manns í sæti en engir áhorfendur verða vegna kórónuveirufaraldursins. „Þetta er smá eins og í úrslitakeppni. Alltaf að spila við sama lið, farinn að þekkja hreyfingar mótherjanna alveg út og inn,“ segir Ólafur um leikinn mikilvæga við Portúgal, sem gæti ráðið afar miklu um möguleikana á að komast í 8-liða úrslit mótsins. Ólafur Guðmundsson fór á sitt fyrsta stórmót 19 ára gamall, þegar Ísland vann bronsverðlaun á EM í Austurríki 2010. Hér fagnar hann marki á EM í Svíþjóð fyrir ári síðan.EPA/ANDREAS HILLERGREN „Ég á erfitt með að sjá að annað liðið komi með eitthvað nýtt. Þetta snýst svolítið um að gera sömu hlutina en reyna að gera þá betur, lesa í smáatriðin og reyna að leysa þau á stuttum tíma með fundahaldi. Við vinnum þá vinnu mjög vel, eins og ég held að allir viti. Vonandi náum við góðum takti strax, því það er ekki að fara að koma mikið nýtt hvað handboltann snertir,“ segir Ólafur. Portúgalar hófu þríleikinn á að lemja Alexander Petersson úr leik og kom hann ekki meira við sögu, hvorki í 26-24 tapinu í Portúgal né í 32-23 sigrinum á Ásvöllum. „Man hvað hinn gæinn gerði“ Ólafur vill þó ekki meina að óhóflega mikil spenna eða pirringur hafi myndast á milli liðanna: „Ég myndi ekki segja pirringur en þetta verður persónulegra, einhvern veginn. Maður man hvað hinn gæinn gerði í síðasta leik og tekur það aðeins með sér. Í síðasta leik fékk maður það á tilfinninguna að eftir því sem leikurinn fjaraði út þá hefðu þeir kastað inn handklæðinu, vitandi það að það væri leikur fljótlega aftur. Það að við skyldum vinna stórt gefur ekki rétta mynd af liðinu. Þetta eru mjög jöfn lið og það má ekki byggja upp falskt sjálfstraust út af þessu. Þetta er 50:50 leikur og bara spennandi.“ Tilbúnir að dreifa ábyrgðinni Portúgalar hafa talað um það að þeir geti mögulega keppt um verðlaun á HM, eftir að hafa orðið í 6. sæti á EM fyrir ári síðan. Flestir virðast hins vegar eiga erfitt með að staðsetja íslenska liðið fyrir mót: „Já, við rennum kannski svolítið blint í sjóinn með það. Það getur verið gott eða slæmt, ég veit það ekki. Portúgalarnir hafa verið á rosalegri uppleið og notið góðs af því að margir þeirra spila saman í Porto og eru því vel samhæfðir, á meðan að við komum meira úr öllum áttum. Svo erum við án Arons [Pálmarssonar] sem hefur alltaf verið stór hluti af okkar liði, en á sama tíma eru margir ungir leikmenn búnir að taka skref upp á við og orðnir þroskaðri. Það verður spennandi að sjá hversu langt þeir eru komnir,“ segir Ólafur. Finnur skyttan sterka fyrir meiri ábyrgðartilfinningu í fjarveru Arons? „Ég er orðinn eldri og búinn að fara á nokkur stórmót, svo maður finnur alveg fyrir þeirri tilfinningu. Ég held að allt liðið þurfi að dreifa ábyrgðinni og það eru margir leikmenn tilbúnir til að gera það. Þetta er bara krefjandi verkefni og skemmtilegt.“ Það verða engir áhorfendur, hvorki íslenskir né aðrir, á HM í Egyptalandi. Svona var stemningin á HM fyrir tveimur árum, í Þýskalandi.EPA/LUKAS BARTH-TUTTAS Ólafur segir aðstæður í Egyptalandi allar hinar bestu og hlakkar til að hefja mótið: „Þetta er geggjuð höll. Það er synd að það skuli ekki vera áhorfendur hérna því Egyptarnir eru búnir að leggja mikið í þetta og það er mikill áhugi á handbolta hérna, skilst mér. Þetta hefði orðið mjög flott. Þetta er öðruvísi stórmót eins og allt í heiminum í dag, en þetta snýst enn bara um handbolta. Við erum því miður flestir orðnir vanir því að spila ekki með áhorfendur, en mikilvægi leikjanna er alltaf það sama og undirbúningurinn er voðalega svipaður og vanalega. Við erum bara á hótelinu, á fundum og æfingum. Þannig lagað hefur maður ekki fundið mikla breytingu, en auðvitað sakna allir áhorfendanna.“
HM 2021 í handbolta Tengdar fréttir Segir að Ýmir sé að komast í hóp bestu varnarmanna heims Ýmir Örn Gíslason er að komast í hóp bestu varnarmanna heims. Þetta segir Einar Andri Einarsson. 13. janúar 2021 12:01 „Hann kveikir í öllu“ Innkoma línumannsins Elliða Snæs Viðarssonar vakti athygli á Ásvöllum í hans fyrsta mótsleik fyrir íslenska landsliðið, í stórsigrinum gegn Portúgal í undankeppni EM. Elliði er í 20 manna landsliðshópnum sem mættur er á HM í Egyptalandi þar sem Ísland hefur leik á morgun. 13. janúar 2021 11:01 Guðmundur telur það best að taka eitt skref í einu Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, fór sparlega í yfirlýsingarnar fyrir HM í Egyptalandi sem hefst á morgun. 12. janúar 2021 20:41 „Geislar af sjálfstrausti og klárt að hann byrjar fyrsta leik á HM“ Ágúst Jóhannsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, segir að nafni sinn, Elí Björgvinsson, muni byrja í marki Íslands gegn Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í Egyptalandi á fimmtudaginn. 12. janúar 2021 15:30 „Hann er fyrirbæri, þessi gaur“ „Fyrir mér á hann að geta orðið einn sá allra besti,“ segir Einar Andri Einarsson um Elvar Örn Jónsson sem sérfræðingar Seinni bylgjunnar telja að verði mikilvægasti leikmaður Íslands á HM í Egyptalandi. 12. janúar 2021 12:51 Umfjöllun: Ísland - Portúgal 32-23 | Níu marka sigur eftir ótrúlegan viðsnúning Ísland vann stórsigur á Portúgal, 32-23, á Ásvöllum í öðrum leik liðanna af þremur á átta dögum. Íslendingum dugar nú að vinna síðustu þrjá leiki sína í undankeppni EM 2022 til að enda á toppi riðils 4. 10. janúar 2021 17:48 Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Fleiri fréttir Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Sjá meira
Segir að Ýmir sé að komast í hóp bestu varnarmanna heims Ýmir Örn Gíslason er að komast í hóp bestu varnarmanna heims. Þetta segir Einar Andri Einarsson. 13. janúar 2021 12:01
„Hann kveikir í öllu“ Innkoma línumannsins Elliða Snæs Viðarssonar vakti athygli á Ásvöllum í hans fyrsta mótsleik fyrir íslenska landsliðið, í stórsigrinum gegn Portúgal í undankeppni EM. Elliði er í 20 manna landsliðshópnum sem mættur er á HM í Egyptalandi þar sem Ísland hefur leik á morgun. 13. janúar 2021 11:01
Guðmundur telur það best að taka eitt skref í einu Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, fór sparlega í yfirlýsingarnar fyrir HM í Egyptalandi sem hefst á morgun. 12. janúar 2021 20:41
„Geislar af sjálfstrausti og klárt að hann byrjar fyrsta leik á HM“ Ágúst Jóhannsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, segir að nafni sinn, Elí Björgvinsson, muni byrja í marki Íslands gegn Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í Egyptalandi á fimmtudaginn. 12. janúar 2021 15:30
„Hann er fyrirbæri, þessi gaur“ „Fyrir mér á hann að geta orðið einn sá allra besti,“ segir Einar Andri Einarsson um Elvar Örn Jónsson sem sérfræðingar Seinni bylgjunnar telja að verði mikilvægasti leikmaður Íslands á HM í Egyptalandi. 12. janúar 2021 12:51
Umfjöllun: Ísland - Portúgal 32-23 | Níu marka sigur eftir ótrúlegan viðsnúning Ísland vann stórsigur á Portúgal, 32-23, á Ásvöllum í öðrum leik liðanna af þremur á átta dögum. Íslendingum dugar nú að vinna síðustu þrjá leiki sína í undankeppni EM 2022 til að enda á toppi riðils 4. 10. janúar 2021 17:48