Viðskipti erlent

Risarnir beina spjótum sínum að „miðli mál­frelsisins“

Sylvía Hall skrifar
Samfélagsmiðillinn Parler hefur notið mikilla vinsælda meðal fólks sem hefur verið bannað eða ritskoðað á Twitter.
Samfélagsmiðillinn Parler hefur notið mikilla vinsælda meðal fólks sem hefur verið bannað eða ritskoðað á Twitter. Getty/Gabby Jones

Samfélagsmiðillinn Parler er nú undir smásjá Apple og Google vegna þess efnis sem deilt er þar inni, en það er sagt hvetja til samskonar óeirða og urðu í Washington á miðvikudag. Miðillinn var stofnaður í ágúst árið 2018 en fór að sækja verulega í sig veðrið á síðasta ári eftir að sífellt fleiri stjórnmálamenn á hægri væng stjórnmálanna fóru að nýta hann til þess að ná til stuðningsmanna sinna.

Parler gefur sig út fyrir að vera miðill tjáningar- og málfrelsis þar sem „alvöru skoðanaskipti“ fara fram, en þar má finna fjölmarga stuðningsmenn forsetans sem og fólk sem aðhyllist QAnon samsæriskenninguna. Samkvæmt henni er djúpríki vestanhafs sem starfar gegn Trump og starfrækir net djöfladýrkandi barnaníðinga sem stjórnar heiminum á bakvið tjöldin.

Þangað fara margir sem Twitter hefur látið loka fyrir, en í gær lá vefurinn tímabundið niðri vegna álags í kjölfar ákvörðunar Twitter um að loka á reikning Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Á meðal vinsælla notenda Parler er þingmaðurinn Ted Cruz, sem er með 4,9 milljónir fylgjenda þar, sem og Fox-stjarnan Sean Hannity sem er með sjö milljónir fylgjenda.

Google hefur nú þegar fjarlægt Parler úr Play Store hjá sér, þar sem notendur geta sótt ýmis smáforrit. Var sú ákvörðun tekin eftir að miðillinn neitaði að taka út „svívirðilegar færslur“ notenda sem gætu hvatt til ofbeldis að þeirra mati. Apple hefur einnig gefið miðlinum viðvörun og tilkynnti í gær að miðillinn hefði sólarhring til þess að grípa til aðgerða áður en hann yrði fjarlægður úr App Store.

Á Parler má finna færslur fólks sem aðhyllist samsæriskenninguna um QAnon, sem gengur út á það að heiminum sé stjórnað af djöfladýrkandi barnaníðingum.Getty/Stephen Maturen

„Valdboðssinnar sem hata tjáningafrelsið“

Beiðnir Apple og Google hafa farið illa í framkvæmdastjórann John Matze, sem kveðst ekki ætla að verða við beiðnum þeirra. „Við munum ekki láta eftir pólitískum fyrirtækjum og þeim valdboðssinnum sem hata tjáningarfrelsið!“

Í bréfi Apple til fyrirsvarsmanna Parler segir að fjölmargar kvartanir hafi borist vegna þeirra samskipta sem þar fara fram. Þá hafi margir fullyrt að miðillinn hafi verið nýttur til þess að skipuleggja og ýta frekar undir þá atburði sem urðu í Washington á miðvikudag.

„Okkar rannsókn hefur leitt í ljós að Parler er hvorki að fylgjast með né fjarlægja efni sem ýtir undir ólöglega háttsemi og setur almenning í hættu,“ sagði Apple í tilkynningu þar sem Parler var gefinn sólarhringsfrestur. „Við munum ekki bjóða upp á miðla sem innihalda hættulegar og meiðandi færslur.“

Líkt og áður sagði hefur Google nú þegar fjarlægt miðillinn úr Play Store þar sem Google gerði þá kröfu að forrit, þar sem notendur gætu sjálfir birt færslur, þyrftu að hafa einhverja yfirstjórn og úrræði til þess að fjarlægja færslur sem ekki samrýmdust notendaskilmálum.

„Í ljósi þeirrar ógnar sem steðjar að almannaöryggi um þessar mundir höfum við fjarlægt forritið úr Play Store þar til gripið verður til aðgerða.“


Tengdar fréttir

Loka fyrir aðgang Trump að Facebook og Instagram

Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni ekki geta notað reikninga sína á Facebook og Instagram í óákveðinn tíma. Í það minnsta þangað til Joe Biden hefur tekið við sem forseti Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Zuckerberg á Facebook.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×