Þægilegt hjá Tottenham gegn utandeildarliðinu

Leikmenn Tottenham fagna fimmta markinu í kvöld.
Leikmenn Tottenham fagna fimmta markinu í kvöld. getty/Martin Rickett

Heimamenn í Marine áttu skot í slá snemma leiks og náðu að halda markinu hreinu í 24 mínútur en þá skoraði Carlos Vinicius fyrsta mark leiksins fyrir Tottenham. Hann var síðan aftur á ferðinni á 30. mínútu og fullkomnaði þrennuna á 37. mínútu, en í millitíðinni skoraði Lucas Moura beint úr aukaspyrnu af stuttu færi. 

Staðan 4-0 í hálfleik og á 60. mínútu bætti hinn ungi Alfie Devine við fimmta marki Tottenham og þar við sat. Lokatölur 5-0 og Tottenham kemst örugglega áfram í fjórðu umferð bikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira