Handbolti

Segir Ísland áfram gott án Arons

Sindri Sverrisson skrifar
Luis Frade stekkur upp til varnar í leiknum við Þýskaland um 5. sæti á EM fyrir ári síðan. Portúgal tapaði leiknum en náði samt sínum besta árangri frá upphafi á EM.
Luis Frade stekkur upp til varnar í leiknum við Þýskaland um 5. sæti á EM fyrir ári síðan. Portúgal tapaði leiknum en náði samt sínum besta árangri frá upphafi á EM. Getty/Martin Rose

Luís Frade, liðsfélagi Arons Pálmarssonar hjá Barcelona, er á leið í þrjá leiki við Ísland á níu dögum með portúgalska landsliðinu. Hann segir fjarveru Arons ekki skipta sköpum.

Það varð endanlega ljóst um helgina að Aron yrði ekki með Íslandi í leikjunum tveimur við Portúgal í undankeppni EM, á miðvikudag og næsta sunnudag, né heldur á HM í Egyptalandi þar sem fyrsti leikur Íslands er einnig við Portúgal 14. janúar.

Þeir Aron og Frade hafa verið liðsfélagar hjá Barcelona síðan í sumar og léku með liðinu í undanúrslitum og úrslitum Meistaradeildar Evrópu á milli jóla og nýárs. Aron varð svo að draga sig til hlés vegna meiðsla en Frade er mættur til Portúgals til æfinga með portúgalska landsliðinu, sem ekki glímir við nein meiðslavandræði.

„Hann [Aron] er lykilmaður en engu að síður þá breytir þetta ekki leik íslenska liðsins. Íslendingar spila vel með og án hans. Þeir eru með leikmenn sem skilja handbolta og hafa mikil gæði, og geta reynst okkur erfiðir,“ sagði Frade við heimasíðu portúgalska handboltasambandsins.

Ísland vann síðast en Portúgal náði lengra

Frade skoraði tvö mörk fyrir Portúgal í 28-25 tapinu gegn Íslandi á EM fyrir ári síðan, þegar Aron skoraði fimm mörk. Portúgal komst þó lengra á mótinu og endaði í 6. sæti en Ísland í 11. sæti. Það er besti árangur sem Portúgalar hafa náð.

„Við verðum að einbeita okkur að okkur sjálfum og undirbúa okkur vel, en ef við spilum okkar leik og höldum einbeitingu í vörninni þá erum við með gæðin til að vinna báða leikina [í undankeppni EM],“ sagði Frade.

Ísland og Portúgal koma til með að berjast um efsta sæti 4. riðils í undankeppni EM en í riðlinum eru einnig Ísrael og Litáen. Ísland vann risasigur á Litáen í nóvember í sínum eina leik til þessa en Portúgal hefur unnið bæði Litáen og Ísrael. Tvö efstu lið riðilsins komast beint á EM og liðin í 3. sæti í fjórum riðlum af átta komast þangað einnig.

Á HM eru Ísland og Portúgal svo með Alsír og Marokkó í riðli. Þrjú efstu liðin komast áfram í milliriðla þar sem þau mæta þremur efstu liðum E-riðils, þar sem Frakkland, Noregur, Austurríki og Bandaríkin spila.


Tengdar fréttir

Björgvin Páll ekki með til Portúgals

Björgvin Páll Gústavsson var ekki í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem hélt utan til Portúgals í morgun. Íslendingar mæta Portúgölum í undankeppni EM á miðvikudaginn.

Aron meiddur og missir af HM

Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, verður ekki með liðinu á HM í Egyptalandi í janúar vegna meiðsla. Þetta staðfesti HSÍ nú rétt í þessu en Aron missir af mótinu vegna meiðsla á hné.

Aron þurfti að sætta sig við silfur

Aron Pálmarsson og samherjar hans í Barcelona töpuðu í kvöld úrslitaleiknum í Meistaradeild Evrópu í handbolta, 33-28, er Kiel hafði betur gegn Börsungum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×