Ríkið kom betur undan endurreisn bankanna en á horfðist Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. janúar 2015 20:08
Íslenska ríkið kom betur út úr endurreisn bankakerfisins en áhorfðist í fyrstu þegar nýju bankarnir voru stofnaðir. Ekkert er hæft í ásökunum Víglundar Þorsteinssonar, segir lögmaður sem kom að endurreisn bankakerfisins fyrir stjórnvöld.Það er erfitt fyrir venjulegt fólk að glöggva sig á því hvað er satt og rétt í ásökunum Víglundar Þorsteinssonar fyrrverandi eiganda BM Vallár um mistök síðustu ríkisstjórnar við endurreisn bankakerfisins. Ekki sít fær þær sakir að ásakanirnar snúast um það sem ríkisstjórnin „hefði átt“ að gera en gerði ekki. Hann telur að mikil mistök hafi verið gerð við ákvörðun verðs fyrir lánasöfn sem flutt voru yfir frá föllnu bönkunum yfir til nýju bankanna árið 2009. Víglundur heldur því fram í greinargerð sinni til alþingismanna aðbráðabirgðaáætlun Fjármálaeftirlitsins (FME) frá október 2008 hafi verið hinn endanlegi úrskurður um verðmæti þeirra eigna sem færðar voru yfir í nýju bankana. Gögn FME frá þeim tíma sýna reyndar að svo var alls ekki, sbr. tilkynningar FME á vef sínum frá haustinu 2008. Verðbilið sem var ákvarðað á eignum sem fórum nýju bankana var um 350 milljarðar króna. Ákveðið var að notast við neðri mörk þessa verðbils þegar endurgjald til gömlu bankana var ákvarðað. „Hinn valkusturinn hefði verið sá að reyna að þvinga einhvers konar mati upp á þessar eignir. Við vitum ekkert hvernig það hefði verið. Við gætum ímyndað okkur að það gæti verið millitala þarna í þessu 350 milljarað verðbili og þá hefðu auðvitað skuldbindingar nýju bankana við gömlu bankana orðið hærri,“ segir Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður en hann kom að samningum við slitabú föllnu bankanna sumarið 2009. Lakari valkostur að láta ríkið halda á bönkunumJóhannes Karl segir að það hefði verið lakari valkostur að láta ríkið halda á bönkunum og gefa út skuldabréf gagnvart slitabúunum. Það hefði í raun gengið gegn hagsmunum ríkisins. Hann segir að íslenska ríkið sé að koma mun betur út úr þessari endurreisn en á horfðist í fyrstu. „Það töpuðu allir á bankahruninu en ef einhver kom þokkalega út úr endurreisninni af hagsmunaaðilum þá finnst manni ríkið hafa komið þokkalega út úr því. Það lagði út á sínum tíma hlutafé í Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankann og það er hefur fengið allt til baka sem það lagði í Íslandsbanka og Arion og heldur núna á eignarhlutnum í Landsbankanum sem hefur gefið góðan arð fyrir ríkið. Þannig að ríkið í sjálfu sér, í þessum einangraða hluta bankakerfisins, kemur ágætlega út,“ segir Jóhannes Karl.Rökstyður ekki brotinÁsakanir um lögbrot sem koma fram í gögnum Víglundar hafa allar verið hraktar. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði sjálfur í viðtali að hann gæti ekki séð í hverju meint lögbrot væru fólgin. Þá gerir Víglundur fátæklegar tilraunir til að rökstyðja í hverju lögbrotin fólust með heimfærslu til tiltekinna lagaákvæða. Í minnisblaði hans koma fram ásakanir um að stjórnsýslulögin, lög um fjármálafyrirtæki og lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi hafi verið brotin en í blaðinu er takmarkaður eða enginn rökstuðningur fyrir því í hverju brot á þessum lögum fólust.
Tengdar fréttir Þungar ásakanir gegn Steingrími Þáverandi stjórnvöld eru sökuð um að hafa farið fram hjá neyðarlögunum, með ávinning kröfuhafa bankanna að leiðarljósi. 24. janúar 2015 07:00 Forsætisráðherra segist telja að Alþingi beri skylda til að rannsaka málið Sigmundur Davíð segir ný gögn staðfesta það sem hann og fleiri hafi lengi haldið fram 23. janúar 2015 19:51 Lán færð yfir með miklum afslætti en engin skýr svör gefin Stofnefnahagsreikningar nýju bankanna, sem eru á meðal gagna sem Víglundur Þorsteinsson hefur sent Alþingi, sýna svart á hvítu að lánasöfn bankanna voru færð yfir í nýju bankana með miklum afslætti sem í sumum tilvikum nam upp undir 50 prósentum. 24. janúar 2015 18:45 „Það má segja að ríkistjórnin hafi kerfisbundið unnið gegn íslenskum hagsmunum“ Víglundur Þorsteinsson hefur aflað gagna og segir að stjórnmálamenn og bankarnir hafi blekkt þjóðina. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður hans, er honum sammála. 23. janúar 2015 12:00 Sigmundur Davíð og heita kartaflan Víglundur Þorsteinsson henti heitri kartöflu á loft. Án hiks greip Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kartöfluna og heldur enn á henni. Samflokksfólki forsætisráðherrans fannst mikið til koma og hefur lofað hann og prísað allar götur síðan. Ekkert annað pólitískt klapp heyrist. Sigmundur Davíð virðist einn með heitu kartöfluna og engan annan virðist langa til að halda á kartöflunni. 28. janúar 2015 07:00 Sigmundur um skjöl Víglundar: Mættum mjög harðri viðspyrnu þegar við bentum á þetta Víglundur Þorsteinsson hefur aflað gagna og segir hann stjórnmálamenn og bankanna hafa blekkt þjóðina. Sigmundur Davíð segir að hann og fólk í Framsóknarflokknum hafi reynt að benda á þetta á sínum tíma. 23. janúar 2015 12:56 Stærstur hluti hagnaðar bankanna vegna endurmats á lánum Marinó G. Njálsson, tölvunarfræðingur og baráttumaður fyrir hagsmunum heimilanna, segir að nýju bankarnir eigi enn eftir að skýra út meðhöndlun sína á afslætti sem þeir fengu á lánasöfnum frá hrunbönkunum. Marinó hefur yfirfarið gögn sem Víglundur Þorsteinsson aflaði. Hann segir ljóst að stærstur hluti hagnaðar nýju bankanna sé til kominn vegna endurmats á lánasöfnum. 25. janúar 2015 20:54 Mest lesið Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Viðskipti erlent Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Viðskipti innlent Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Viðskipti innlent Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Viðskipti innlent Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Viðskipti erlent Velta heilsulinda jókst töluvert Viðskipti innlent Fleiri fréttir Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Sjá meira
Þungar ásakanir gegn Steingrími Þáverandi stjórnvöld eru sökuð um að hafa farið fram hjá neyðarlögunum, með ávinning kröfuhafa bankanna að leiðarljósi. 24. janúar 2015 07:00
Forsætisráðherra segist telja að Alþingi beri skylda til að rannsaka málið Sigmundur Davíð segir ný gögn staðfesta það sem hann og fleiri hafi lengi haldið fram 23. janúar 2015 19:51
Lán færð yfir með miklum afslætti en engin skýr svör gefin Stofnefnahagsreikningar nýju bankanna, sem eru á meðal gagna sem Víglundur Þorsteinsson hefur sent Alþingi, sýna svart á hvítu að lánasöfn bankanna voru færð yfir í nýju bankana með miklum afslætti sem í sumum tilvikum nam upp undir 50 prósentum. 24. janúar 2015 18:45
„Það má segja að ríkistjórnin hafi kerfisbundið unnið gegn íslenskum hagsmunum“ Víglundur Þorsteinsson hefur aflað gagna og segir að stjórnmálamenn og bankarnir hafi blekkt þjóðina. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður hans, er honum sammála. 23. janúar 2015 12:00
Sigmundur Davíð og heita kartaflan Víglundur Þorsteinsson henti heitri kartöflu á loft. Án hiks greip Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kartöfluna og heldur enn á henni. Samflokksfólki forsætisráðherrans fannst mikið til koma og hefur lofað hann og prísað allar götur síðan. Ekkert annað pólitískt klapp heyrist. Sigmundur Davíð virðist einn með heitu kartöfluna og engan annan virðist langa til að halda á kartöflunni. 28. janúar 2015 07:00
Sigmundur um skjöl Víglundar: Mættum mjög harðri viðspyrnu þegar við bentum á þetta Víglundur Þorsteinsson hefur aflað gagna og segir hann stjórnmálamenn og bankanna hafa blekkt þjóðina. Sigmundur Davíð segir að hann og fólk í Framsóknarflokknum hafi reynt að benda á þetta á sínum tíma. 23. janúar 2015 12:56
Stærstur hluti hagnaðar bankanna vegna endurmats á lánum Marinó G. Njálsson, tölvunarfræðingur og baráttumaður fyrir hagsmunum heimilanna, segir að nýju bankarnir eigi enn eftir að skýra út meðhöndlun sína á afslætti sem þeir fengu á lánasöfnum frá hrunbönkunum. Marinó hefur yfirfarið gögn sem Víglundur Þorsteinsson aflaði. Hann segir ljóst að stærstur hluti hagnaðar nýju bankanna sé til kominn vegna endurmats á lánasöfnum. 25. janúar 2015 20:54