Laxeldi á að skapa 50 störf 29. júní 2011 08:30 Fyrirtækið Arnarlax undirbýr eldi á þrjú þúsund tonnum af laxi í Arnarfirði. Norskt fyrirtæki, sem vinnur um níu þúsund tonn á ári, er bakhjarl fyrirtækisins. Beðið er eftir nauðsynlegum starfs- og rekstrarleyfum. Mynd/Víkingur Gunnarsson
Fyrirtækið Arnarlax vinnur nú að því að fá starfs- og rekstrarleyfi fyrir eldi á þrjú þúsund tonnum af laxi í Arnarfirði. Áform eru uppi um að fullvinna afurðina á Bíldudal og myndi vinnslan skapa störf fyrir fimmtíu manns, að sögn Víkings Gunnarssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann segir norska eldisfyrirtækið Salmus vera bakhjarl fyrirtækisins. „Þeir eru brautryðjendur í Noregi í fullvinnslu á eldisfiski og vinna um það bil átta til níu þúsund tonn árlega," segir hann. Framkvæmdastjóri Salmus er Matthías Garðarsson sem ættaður er frá Bíldudal. „Við erum komnir með úrskurð frá Skipulagsstofnun og umsókn um starfsleyfi er komin á borð Umhverfisstofnunar og í framhaldinu fer umsókn um rekstrarleyfi á borð Fiskistofu en þetta ferli getur tekið nokkra mánuði," segir Víkingur. Hann er, eins og aðrir sem standa á bak við Arnarlax, frá Bíldudal og segir hann að vinnslan yrði kærkomin lyftistöng fyrir þorpið. „Bíldudalur hefur misst um 60 prósent af íbúum sínum frá því að kvótakerfið var sett á laggirnar svo það væri mjög jákvætt ef af þessu gæti orðið." Víkingur segir að nú þegar hafi verið gerðar mælingar á öllum aðstæðum í firðinum og hafi niðurstöður þeirra verið jákvæðar. „Ég veit vel að laxeldi hefur gengið brösuglega á Íslandi en þetta verður unnið með mönnum sem hafa langa reynslu í þessum efnum í Noregi og ekki verður anað að neinu," segir Víkingur. Norðmenn hafa undanfarin ár stóraukið eldi á laxi og er eldislax nú 58 prósent af heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða þar. Þeir fluttu út á síðasta ári 998 þúsund tonn af eldislaxi og nam útflutningsverðið rúmum 666 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar má nefna að heildarverðmæti útflutningsframleiðslu Íslendinga nam 220 milljörðum í fyrra.- jse
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira