Framtíðarsýn byggir á nýjum virkjunum 29. júní 2011 06:00 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir áætlanir um fjármögnun virkjanaframkvæmda Landsvirkjunar næstu fimmtán árin ekki hafa verið lagðar fram.Fréttablaðið/GVA „
Framtíðarsýnin byggir á því að nýjar virkjanir verði byggðar. Ef ekkert verður byggt þá verður sagan önnur. En það verður ekkert slæm saga,“ segir Ásgeir Jónsson, sérfræðingur hjá fjármálafyrirtækinu GAMMA og einn höfunda skýrslu um efnahagsleg áhrif af rekstri og arðsemi Landsvirkjunar til ársins 2035. Í skýrslunni kemur fram að áætlaðar arðgreiðslur Landsvirkjunar til ríkissjóðs geti numið allt frá 30 til 112 milljörðum króna á ári. Allt fer það eftir því hvenær ráðist verði í nýjar framkvæmdir, hvort sæstrengur verði lagður héðan til meginlands Evrópu, þróun raforkuverðs, nýjum samningum um raforkusölu og endurnýjun á eldri samningum. Hæsta arðgreiðslan er álíka há og hið opinbera leggur til allra framhalds- og háskóla landsins, menningar, íþrótta- og trúmála auk löggæslu, dómstóla og fangelsa. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur áður boðað þessa sömu framtíðarsýn. Hann segir hana öðru fremur mikilvæga svo hægt verði að ákveða hvert stefna eigi með Landsvirkjun. Framtíðarsýn Landsvirkjunar gerir sem fyrr ráð fyrir tvöföldun raforkuframleiðslu á næstu fimmtán árum, niðurgreiðslu skulda og að arðgreiðslur hefjist fyrir árið 2020. Hörður segir margar forsendur verða að ganga upp til að framtíðarsýn Landsvirkjunar geti orðið fyllilega að veruleika. Hann bendir á að Landsvirkjun sé enn of skuldsett og því sé ein forsendan sú að þegar viðunandi skuldahlutfalli verði náð muni arður verða greiddur út. Í skýrslunni er gert ráð fyrir að ríkissjóður fái fyrstu arðgreiðsluna eftir tvö ár og verði hún um fjórðungur af landsframleiðslu. Árið 2021 munu þær aukast hratt og gætu farið í um fjögur til sex prósent af landsframleiðslu áratug síðar þegar fyrirhuguðu framkvæmdatímabili Landsvirkjunar lýkur, segir Hörður. Ekki hafi verið lagðar fram áætlanir um fjármögnun virkjanaframkvæmda þótt þeirra sé getið í skýrslu GAMMA. „Við gerum aðeins ráð fyrir að hafa aðgang að fjármagninu þegar þar að kemur, það er sérstakt verkefni,“ segir Hörður. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira