Kvika tapaði tæpum 500 milljónum Sæunn Gísladóttir skrifar 4. mars 2016 11:36 Sigurður Atli, forstjóri Kviku, segir rekstrarleg markmið samrunans hafa náðst, strax á fyrsta ári hans. Vísir/Anton
Á síðasta ári tapaði fjárfestingabankinn Kvika 483 milljónum króna eftir skatta. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að afkoman sé lituð af samruna- og einskiptiskostnaði. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 685 milljónum króna á árinu og arðsemi virks eiginfjár 11 prósent þegar leiðrétt hefur verið fyrir samruna- og einskiptiskostnaði. Síðari helmingur ársins var bankanum hagfelldur en þá nam hagnaður af reglulegri starfsemi 464 milljónum króna og arðsemi eiginfjárþáttar A var 15,1 prósent á tímabilinu. Hreinar þóknanatekjur námu 2.608 milljónum króna á árinu og hækkuðu um 878 milljónir króna frá fyrra ári eða um 51 prósent. Hreinar vaxtatekjur námu 1.124 milljónum króna samanborið við 1.302 milljónir króna árið 2014. Lækkunin skýrist m.a. af hærra hlutfalli lausafjáreigna og lengri fjármögnun bankans sem endurspeglast í mikilli hækkun lausafjárhlutfalls. Vaxtamunur útlána á síðasta ári var 3,4 prósent. „Árið 2015 var viðburðaríkt og markað af sameiningu MP banka hf. og Straums fjárfestingabanka hf. undir merkjum Kviku banka hf. Það er krefjandi verkefni að sameina tvö öflug fyrirtæki í eitt og mæddi mikið á starfsfólki Kviku sem stóð sig frábærlega. Rekstrarleg markmið samrunans hafa náðst, strax á fyrsta ári hans. Rekstrarkostnaður er um 14 prósent lægri en hann var sameiginlega fyrir samrunann. Sameiginlegur fjárhagslegur styrkur er umtalsvert meiri eins og há eiginfjár- og lausafjárhlutföll bera vott um. Fjárfestar og innlánseigendur hafa tekið Kviku mjög vel. Innlán jukust á árinu, við hófum víxlaútgáfu og vorum fyrsti bankinn eftir fjármálakreppu til að selja og skrá á markað víkjandi skuldabréf,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku, í tilkynningu. Í árslok 2015 námu heildareignir samstæðu Kviku 61.614 milljónum króna samanborið við 49.344 milljónum króna í lok árs 2014 og nemur hækkunin um 25 prósent. Handbært fé í árslok nam 19.917 milljónum króna sem er hækkun um 6.947 milljónir króna á árinu og aðrar lausafjáreignir námu 17.812 milljónum króna. Hlutfall lausafjáreigna og handbærs fjár af heildarskuldum bankans í árslok nam 68 prósent.
Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Sjá meira