Dohop nær samningum við Emirates 27. febrúar 2009 08:30
Íslenska tæknifyrirtækið Dohop hefur gert samning við Emirates-flugfélagið um rekstur á flugupplýsingakerfi fyrir vefsíðu Emirates. Kerfið gerir viðskiptavinum Emirates kleift að finna framhaldsflug á einfaldan og þægilegan hátt en Emirates hefur á sama tíma gengið til samstarfs við leiðandi lággjaldaflugfélög á helstu markaðssvæðum Emirates um tengiflug. Þetta samstarf Emirates við lággjaldafélögin byggir á tækni Dohop. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Dohop. Þjónustan, sem hlotið hefur heitið Emirates Connection Search, sýnir tengiflug með flugfélögunum AirAsia, Clickair, EasyJet, IndiGo, JetLite og WestJet en Emirates undirbúa nú að bæta við fleiri lággjaldaflugfélögum. Dohop hefur þróað leitarvél fyrir flugtengingar frá árinu 2004 en þá var opnuð fyrsta útgáfa leitarvélarinnar á vefnum, Dohop.com. Síðan hefur þjónustunni jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg og þrátt fyrir samdrátt í fluggeiranum síðustu mánuði hefur aðsókn á vefinn haldið áfram að aukast verulega. „Það hefur sjaldan verið mikilvægara en einmitt nú að finna flug á lægsta mögulega verði og þjónusta Dohop gerir viðskiptavinum Emirates kleift að finna og bóka framhaldsflug á hagstæðu verði. Auk þess finnur leitarvélin þægilegustu flugtengingarnar sem völ er á hverju sinni," segir Jón Ingi Þorvaldsson, viðskiptastjóri hjá Dohop. „Það er mikill heiður fyrir Dohop að fá að vinna með Emirates að þróun hugbúnaðarlausna fyrir hinn margverðlaunaða vef Emirates.com," bætir Jón Ingi við.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira