KB banki langstærstur 13. desember 2004 00:01
HB Grandi og Opin kerfi falla út úr úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands um næstu áramót. Í stað þeirra koma Flugleiðir á ný inn í vísitöluna og Kögun sem er að ljúka yfirtöku Opinna kerfa mun koma í úrvalsvísitölu fimmtán fyrirtækja. Kb banki mun sem fyrr vega þyngst í vísitölunni. Vægi bankans er 38,7 prósent af vísitölunni. Fjármálafyrirtæki vega tæp 62 prósent af vísitölunni. Vægi sjávarútvegs er hins vegar einungis 2,21 prósent af vísitölunni. Vægi fimm stærstu fyrirtækjanna í úrvalsvísitölunni er 76,8 prósent. Við val á fyrirtækjum í vísitölurnar er horft til nokkurra þátta. Fyrst eru valin 20 félög sem mest viðskipti er með í Kauphöll Íslands og þeim raðað eftir markaðsvirði leiðréttu fyrir floti eða þeim hlutabréfum sem eru virk á markaði. Kauphöllin setur síðan skilyrði um verðbil í kaup- og sölutilboðum og á það ekki að vera meira en 1,5 prósent að meðaltali. HB Grandi féll einmitt úr vísitölunni á þeirri forsendu og Medcare Flaga fór inn fyrir vikið. Þrjú félög sem náðu inn í vísitöluna uppfylla ekki verðbilsskilyrðin. Í herbúðum Landsbankans er líklegasta skýring fréttarinnar talin sú að nafn bankans hafi komið upp í viðræðum um kaup á fjármálafyrirtækjum, síðast verðbréfafyrirtækinu Numis. Þrálátur orðrómur er um að Landsbankinn leiti fjármálafyrirtækja, bæði í Bretlandi, á Norðurlöndunum og í Lettlandi, þar sem talið er að áhugi sé á Parex-bankanum í Riga. Ekkert mun þó enn sem komið er fast í hendi um hugsanleg kaup bankans erlendis, en stjórnendur og eigendur bankans hafa lýst því yfir að hugað sé að vexti erlendis.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira