Viðskipti erlent

Bandaríska hagkerfið dróst saman um 4,8%

Kjartan Kjartansson skrifar
Verslunareigandi í New Jersey hugar að búð sinni sem er lokuð vegna faraldursins. Líkt og annars staðar er efnahagslíf Bandaríkjanna í lamasessi. 
Verslunareigandi í New Jersey hugar að búð sinni sem er lokuð vegna faraldursins. Líkt og annars staðar er efnahagslíf Bandaríkjanna í lamasessi.  AP/Matt Rourke

Samdráttur upp á 4,8% í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi er sá mesti sem mælst hefur þar fjármálakreppunni fyrir rúmum áratug. Engu að síður telja hagfræðingar það aðeins lognið á undan storminum þar sem samdrátturinn gæti náð allt að 30% á næsta fjórðungi.

Útgjöld Bandaríkjamanna drógust saman um 7,6% og fjárfestingar fyrirtækja um 8,6% samkvæmt nýjum hagtölum við viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem samdráttur verður í Bandaríkjunum frá árinu 2014.

Hagtölurnar gefa fyrstu vísbendingarnar um áhrif kórónuveiruheimsfaraldursins og aðgerða til að hefta útbreiðslu hans á hagkerfið en búist er við því að enn verra sé í vændum. Takmarkanir vegna faraldursins tóku enda ekki gildi víðast hvar fyrr en í mars.

Greinendur telja þannig 30% samdrátt eða meiri líklegan á næsta ársfjórðungi, að sögn Washington Post. Slíkur samdráttur hefur ekki sést frá því í kreppunni miklu á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.

„Þetta eru verstu hörmungarnar í fleiri kynslóðir. Það gæti tekið okkur tíu ár að komast aftur þangað sem við byrjuðum. Það er ekki útilokað á þessari stundu,“ segir Kenneth Rogoff, prófessor við Harvard-háskóla og fyrrverandi aðalhagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Bandarísk stjórnvöld hafa brugðist við samdrættinum með meira en tveggja biljóna dollara neyðarpakka sem er ætlað að styrkja fyrirtæki og almenning og halda hagkerfinu gangandi. Engu að síður hafa um 26 milljónir landsmanna misst vinnuna og sótt um atvinnuleysisbætur. Fjöldi fyrirtækja rambar á barmi gjaldþrots.

Sum ríki Bandaríkjanna eru þegar byrjuð að grípa til að gerða til að slaka á sóttvarnaaðgerðum og fleiri vinna að áætlunum um það. Varað hefur verið við því að faraldurinn gæti blossað upp aftur verði farið of geyst af stað. Ríkisstjórar hafa kvartað undan því að geta til að skima fyrir veirunni og rekja smit sé ekki nægileg til þess að slaka á aðgerðum ennþá.


Tengdar fréttir

Mesti samdráttur frá Kreppunni miklu

Samdráttur á hagkerfi heimsins verður sá mesti í áratugi að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Efnahagsþrengingarnar vegna kórónuveiruheimsfaraldursins eru þær mestu frá því í Kreppunni miklu á 4. áratug síðustu aldar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×