Einar: Erum ekki með neinar stórstjörnur en flotta liðsheild Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2015 20:01 Einar Jónsson á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Anton
Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, var eðlilega kátur eftir þriggja marka sigur Garðbæinga, 26-23, á Akureyri í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarins í kvöld. "Svona er þetta stundum, þetta datt með okkur í dag," sagði Einar eftir leik. "Þetta var jafnt en við leiddum meirihlutann af leiknum og héldum út. Við rúlluðum vel á liðinu og það voru allir sem skiluðu einhverju. Ég er ánægður og stoltur að hafa náð að klára þetta." Stjörnumenn, sem sitja á toppnum í 1. deildinni, leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 16-11, og voru í góðri stöðu lengi framan af seinni hálfleiknum. Um miðbik hans kom slæmur kafli hjá Garðbæingum og Akureyringar náðu tvívegis að minnka muninn í eitt mark. Þeim tókst þó ekki að jafna þrátt fyrir mörg tækifæri. En skipti það máli að mati Einars? "Jú, kannski. Við hikstuðum smá á þessum kafla en héldum haus og sigldum þessu heim. "Sjálfsagt skipti það máli að þeir náðu ekki að jafna," sagði Einar sem var ánægður með hversu vel markaskorið dreifðist hjá Stjörnunni en níu leikmenn liðsins skoruðu í leiknum en aðeins fimm hjá Akureyri. "Við höfum notað marga leikmenn í vetur og flestir eru með stórt hlutverk í liðinu. Vörnin hjá okkur var frábær í fyrri hálfleik, og eiginlega allan leikinn, og Einar (Ólafur Vilmundarson) var góður fyrir aftan. "Við erum bara þannig lið að við erum ekki með neinar stórstjörnur en við erum með flotta liðsheild," sagði Einar að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira