Viðskipti erlent

Telur að vandræði flugbransans séu rétt að byrja

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Airbus A380.
Airbus A380. Vísir/AP

Guillaume Faury, framkvæmdastjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, telur að sú niðursveifla sem flugbransinn um víða veröld stendur nú frammi fyrir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sé enn á frumstigi.

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs tapaði Airbus um 481 milljónum evra, eða um 77 milljörðum íslenskra króna. Þá hefur fyrirtækið þurft að taka milljarða evra lán, auk þess sem starfsfólki hefur verið sagt upp eða sent í launalaust leyfi.

Faury segir að þegar dregið verði úr þeim ferðatakmörkunum sem ríki nú víða um heim, verði samt erfitt að sannfæra fólk um að ferðast með flugfélögum. Sjálfur kveðst hann ekki viss um hversu langan tíma það muni taka.

„Við erum í alvarlegustu krísu sem flugbransinn hefur staðið frammi fyrir. Nú þurfum við að vinna saman sem starfsgrein og endurheimta traust farþega á flugferðalögum, á sama tíma og við lærum að lifa með þessum heimsfaraldri.“

Hlutabréf í Airbus og Boeing, helsta keppinaut þeirra, hafa lækkað um 60 prósent á þessu ári. Flugfélög heims, helstu viðskiptavinir flugvélaframleiðenda, hafa þurft að draga verulega úr starfsemi sinni til þess að eygja von um að komast hjá gjaldþroti. Dæmi um slíkar aðgerðir er að finna hér á landi, en í gær sagði Icelandair upp meira en 2000 starfsmönnum sínum.

Yfirmenn hjá Airbus hafa lýst því yfir að þeir voni að afhending þeirra flugvéla sem dróst vegna kórónuveirufaraldursins geti farið fram á seinni hluta þessa árs. Þeir hafa hins vegar ekki treyst sér til þess að gefa út áætlun þess efnis þar sem útbreiðsla kórónuveirunnar í heiminum er enn í fullum gangi og ríkisstjórnir heims hafa margar hverjar ekki viljað aflétta ferðatakmörkunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×